Byko
Byko
Byko

Svæðisstjóri - BYKO Granda

BYKO auglýsir eftir svæðisstjóra í verslun BYKO á Granda. Leitum að öflugum, hressum og duglegum leiðtoga til að aðstoða okkur við að stýra þeim frábæra hópi fólks sem vinnur í versluninni.

Ef þú ert framsækinn og faglegur einstaklingur með gleðina í fyrirrúmi þá erum við að leita að þér.

Starf svæðisstjóra er ábyrgðamikið, skemmtilegt og fjölbreytt.


Við leitum að einstaklingi með:

  • Áhuga á sölu- og þjónustu til viðskiptavina
  • Reynslu af stýringu hóps
  • Reynslu af verslunarstörfum
  • Þekking og áhugi á byggingarvörum
  • Ríka þjónustulund
  • Skipulagshæfni
  • Mjög góða samskiptahæfni
  • Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti


Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Sala og þjónusta til viðskiptavina
  • Ábyrgð á daglegri starfsemi deildanna, mönnun vakta o.fl.
  • Önnur tilfallandi verkefni í samráði við næsta yfirmann


Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum og á öllum aldri til að sækja um.


BYKO hefur sett sér þá framtíðarsýn að skapa bestu heildarupplifun viðskiptavina í framkvæmdum og fegrun heimilisins. Í þeirri vinnu höfum við gildin okkar að leiðarljósi; fagmennska, framsækni og gleði.


Umsóknarfrestur er til og með 1. mars 2026 en unnið verður úr umsóknum jafnóðum.
Allar nánari upplýsingar veitir Karl Már Lárusson, ([email protected]) verslunarstjóri.

Auglýsing birt18. febrúar 2026
Umsóknarfrestur1. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Fiskislóð 2-8, 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar