
Melabúðin
Melabúðin er rótgróin kaupmannsbúð með hátt þjónustustig.
Við erum með úrvals kjöt- og fiskborð, mikið úrval grænmetis og erlendra osta. Við bjóðum afar fjölbreytt vöruúrval, bæði sælkeravöru sem og matvöru til daglegrar neyslu.
Við leggjum mikið upp úr íslenskri vöru og nýjungum tengdum henni en jafnframt flytjum við sjálf inn sælkeravörur erlendis frá.
Áherslur okkar liggja í persónulegri þjónustu og breiðu vöruúrvali. Samhliða því veitum við ráðgjöf við val á kjöti og fiski og matreiðslu.
Melabúðin býður upp á lifandi starfsumhverfi en mikið er lagt upp úr áreiðanleika, ríkri þjónustulund og skemmtilegu viðmóti starfsfólks. Við erum rösk og göngum beint og glaðlega til verks og leitum þess sama hjá nýjum samstarfsmönnum okkar.
Melabúðin hefur fengið viðurkenningu hjá CreditInfo sem framúrskarandi fyrirtæki 10 ár í röð og jafnframt verið valið fyrirtæki ársins af Verslunarmannafélagi Reykjavíkur (VR).

Sumarstörf og hlutastörf
Óskum eftir rösku og hressu starfsfólki til sumarafleysinga við afgreiðslu, áfyllingu ofl.
Fjölbreytt heilsdagsstörf virka daga, kvöld og helgarstörf í boði
Þjónustulund, snyrtimennska, jákvæðni og stundvísi áskilin.
Leitum einnig að aðila til starfa í kjötborð okkar, hluta eða heilsdagsstarf.
Aldursmörk 17-70 ára.
Íslenskukunnátta er áskilin
Helstu verkefni og ábyrgð
Afgreiðsla, áfylling og almenn verslunarstörf
Auglýsing birt3. apríl 2024
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Hagamelur 39, 107 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Starfsmaður í kjötdeild (hlutastarf) - Höfuðborgarsvæðið
Krónan

Verslunarstjóri - Glerártorg
KiDS Coolshop

bílstjóri og aðstoð í eldhúsi
Veislulist

Sölufulltrúi í verslun Stórhöfða 25 - hlutastarf
Eirberg - Stuðlaberg heilbrigðistækni

Bókavörður á Djúpavogi
Bókasafn Múlaþings

Sölufólk óskast í verslanir okkar
NTC ehf

Aðstoðarmanneskja í mötuneyti
Embla Medical | Össur

Campsite Agent
Tjaldsvæðið í Laugardal

Starfsfólk óskast í hlutastarf
S4S Premium Outlet

Verslunarstjóri S4S Premium Outlet
S4S Premium Outlet

Sundlaugarvörður - Íþróttamiðstöðin Garði
Suðurnesjabær

Kitchen help / Aðstoð í eldhúsi
Nings