

Sumarstörf í vefverslun ELKO
ELKO leitar að starfsfólki til starfa í vefverslun yfir sumartímann.
ELKO leggur áherslu á góða nýliðamóttöku og þjálfun.
Starfið felur í sér tiltekt og afgreiðslu pantana auk eftirkaupaþjónustu og úrlausn erinda viðskiptavina. Starfsfólk í vefverslun sinnir einnig akstri á milli verslana ELKO.
Opunartími vefverslunar er 08:00 - 16:00 alla virka daga og 09:00 - 17:00 um helgar. Farið er fram á að viðkomandi geti bæði unnið vaktir á virkum dögum og um helgar
Hæfniskröfur:
- 20 ára og eldri
- Góð tök á íslensku máli, bæði skriflega og munnlega
- Áhugi og vilji til að veita viðskiptavinum og samstarfsmönnum góða aðstoð og þjónustu
- Rík þjónustulund
- Góð færni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
- Skipulagsfærni
- Góð meðmæli og hreint sakavottorð
- Reyklaus
- Gilt bílpróf
Frekari upplýsingar um starfið veitir Elvar Orri Jóhannsson, dreifingarstjóri ([email protected])
Umsóknarfrestur er út 05.04.26
Við hvetjum alla, sem uppfylla hæfniskröfurnar, til að sækja um!
Elko starfrækir vottað jafnlaunakerfi og hefur skuldbundið sig til að greiða jöfn laun fyrir sömu eða jafnverðmæt störf.
Íslenska










