Sumarstörf hjá Rafal
Langar þig að vinna hjá traustu og skemmtilegu fyrirtæki í sumar sem er leiðandi á sviði rafiðnaðar?
Rafal óskar eftir að ráða öfluga rafvirkja og rafvirkjanema í skemmtileg sumarverkefni.
Ráðningartíminn er frá lok maí fram að verslunarmannahelgi.
Hæfniskröfur
- 18 ára og eldri
- Nemi í rafvirkjun
- Viðkomandi þarf að hafa bílpróf
- Vinnuvélaréttindi kostur
- Sterk öryggisvitund
- Frumkvæði, stundvísi og samviskusemi
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Hæfni til að vinna í hóp
Rafal er lykilaðili í rekstri og uppbyggingu raforkuinnviða landsins, allt frá hönnun, uppsetningu, gangsetningu að rekstri og þjónustu.
Rafal er vaxandi og framsækið fyrirtæki en hjá félaginu starfa um 140 starfsmenn.
Rafal er fjölskylduvænn vinnustaður og styður við að það sé jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Hjá Rafal er rekið mjög öflugt starfsmannafélag og leggjum við ríka áherslu á góðri starfsánægju.
Gildi Rafal eru: Hugrekki, Ástríða, Samstaða og Traust
Rafal hvetur einstaklinga af öllum kynjum til að sækja um starfið