Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Sumarstarfsmaður í ferðaþjónustu hjá Hafnarfjarðarhöfn

Sumarstarfsmaður hjá Hafnarfjarðarhöfn í ferðaþjónustu

Hafnarfjarðarhöfn, í samstarfi við Hafnarfjarðarbæ, leitar að öflugum sumarstarfsmanni til að sinna verkefnum tengdum þjónustu við skemmtiferðaskip og upplýsingamiðlun ferðamála í Hafnarfirði. Leitað er eftir sumarstarfsmanni sem hefur þekkingu og áhuga á ferðaþjónustu.

Auk þess mun starfsmaðurinn sinn almennri upplýsingagjöf um áfangastaðinn Hafnarfjörð og öðrum tilfallandi verkefnum eins og við á.

Hafnarfjarðarhöfn er ein elsta höfn landsins en starfsemi hennar er í dag ákaflega mikil og fjölbreytt.

Um er að ræða 100% starf.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Samskipti við þjónustuaðila á hafnarsvæði
  • Samvinna með umboðsaðilum farþegaskipa og Hafnarfjarðarhöfn
  • Miðlun upplýsinga um ferðatengda þjónustu innan Hafnarfjarðar
  • Markaðsrannsókn í samvinnu við Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins
  • Aðstoð við svörun fyrirspurna um áfangastaðinn Hafnarfjörð
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Stúdentspróf
  • Æskilegt að hafa reynslu af ferðaþjónustu eða hliðstæðum störfum
  • Áhugi á ferðaþjónustu
  • Frumkvæði, sjálfstæði og metnaður til að ná árangri í starfi
  • Góð samskiptahæfni, þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum
  • Góð íslensku og ensku kunnátta í töluðu og rituðu máli
  • Góða þekkingu á hafnfirsku samfélagi til að miðla til farþega

Nánari upplýsingar veitir Lúðvík Geirsson, hafnarstjóri Hafnarfjarðarhafnar, [email protected] og Sunna Magnúsdóttir, verkefnastjóri menningar- og ferðamála á Þjónustu- og þróunarsviði, [email protected]

Umsóknarfrestur til og með 6. apríl 2026.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og STH.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Auglýsing birt19. mars 2026
Umsóknarfrestur6. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Strandgata 8-10
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar