

Skapandi markaðsmanneskja
Háskólinn í Reykjavík óskar eftir öflugri og skapandi markaðsmanneskju í samheldið teymi í samskiptadeild. Viðkomandi mun vinna náið með forstöðumanni samskipta og teyminu öllu að markaðsmálum, þar sem áherslan er á að miðla námi, vísindum, rannsóknum og sérstöðu HR á lifandi hátt. Starfið felur m.a. í sér daglega umsjón með markaðsherferðum, efnissköpun fyrir samfélagsmiðla, samstarf við nemendur og starfsfólk, uppbyggingu alumni-tengslanets HR og þátttöku í kynningarstarfi.
Helstu verkefni
- Dagleg umsjón og eftirfylgni markaðsherferða á innlendum og erlendum markaði, m.a. samskipti við auglýsingastofu, akademískar deildir og samstarfsaðila
- Efnissköpun fyrir samfélagsmiðla HR, dagleg umsjón og svörun
- Mælingar, markmiðasetning og greining á árangri samfélagsmiðla
- Umsjón með hópi nemenda (áHRifavalda) sem taka þátt í efnissköpun fyrir samfélagsmiðla HR
- Textaskrif á íslensku og ensku
- Uppbygging alumni-tengslanets HR og þátttaka í innleiðingu CRM-kerfis
- Markaðssetning á viðburðum í nafni HR og viðvera á stærri kynningarviðburðum á borð við Háskóladaginn, UTmessu og Vísindavöku, auk framhaldsskólakynninga
Hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af markaðsstörfum, sérstaklega á samfélagsmiðlum
- Reynsla af efnissköpun og myndbandsgerð fyrir Instagram Reels og TikTok
- Reynsla af stafrænni markaðssetningu og grunnþekking á Meta Ads Manager
- Reynsla af mælingum og greiningu á árangri
- Framúrskarandi ritfærni á íslensku og ensku
- Reynsla af markaðssetningu gagnvart erlendum markhópum er kostur
- Þekking á CRM-kerfum er kostur
- Skipulagshæfni, frumkvæði og geta til að halda utan um mörg verkefni samtímis
- Framúrskarandi samskiptahæfni og geta til að vinna vel í hópi
Umsóknarfrestur er til og með 6. desember en umsóknir verða metnar jafnóðum og þær berast. Umsóknir berist rafrænt í gegnum umsóknarvef Háskólans í Reykjavík.
Allar nánari upplýsingar veitir Ásthildur Gunnarsdóttir, forstöðumaður samskiptasviðs, [email protected] eða Elísabet Þ. Jóhannesdóttir, mannauðssérfræðingur, [email protected].
Íslenska
Enska


