Sumarstörf - Kópavogsbær
Sumarstörf - Kópavogsbær
Sumarstörf - Kópavogsbær

Sumarstarf - Skapandi vegglist í Molanum

Skapandi vegglist í Molanum

Auglýst er eftir umsóknum um störf við vegglistagerð í Kópavogi sumarið 2020. Um er að ræða spennandi störf fyrir ungmenni 18 ára og eldri (fædd á tímabilinu 1995 - 2003) í allt að 8 vikur á tímabilinu 28. maí til 23. júlí 2020.

Með umsókn þarf eftirfarandi að fylgja:

  • Ferilskrá og kynningarbréf með upplýsingum um umsækjenda og ástæður fyrir umsókn um starfið.
  • Greinargóð lýsing á tillögu um eitt verk sem hentar á vegg ásamt skissum.
  • Greinargóð lýsing á tillögu um eitt verk sem hentar í undirgöng ásamt skissum.

Athugið! Hægt er að senda lýsinguna á verkefninu með sem viðhengi. Einnig má skila lýsingu, skissum og fleiru í umslagi merkt „Vegglist í Kópavogi -umsókn“ í Molann ungmennahús Hábraut 2, 200 Kópavogi.

Menntunar- og hæfniskröfur
Reynsla af vegglist og/eða myndlist æskileg.
Umsækjendur þurfa að vera fæddir á tímabilinu 1995-2003.
Samviskusemi, stundvísi og jákvæðni.
Hæfni í mannlegum samskiptum.
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfsfólki í vegglist er ætlað að skreyta veggi og undirgöng bæjarins.
Starfsfólk þarf að geta unnið sem einstaklingar og í hópum.
Um er að ræða hugmyndavinnu, skissugerð, undirbúning, framkvæmd og frágang.
Auglýsing birt8. febrúar 2021
Umsóknarfrestur28. febrúar 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Digranesvegur 1, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar