
Ölgerðin
Lykillinn að velgengni fyrirtækja er að hluta fólginn í mannauði þeirra.
Við drögum að og höldum hæfasta starfsfólkinu með hvetjandi fyrirtækjamenningu án fordóma og með áherslu á jafna möguleika. Hjá fyrirtækinu starfar fjölbreyttur hópur af skapandi og framsæknu fólki. Sjálfbærni er samofin menningu, við eyðum allri sóun og nýtum okkur stafræna tækni til umbóta sem skapar okkur samkeppnisforskot.
Við sinnum hverjum viðskiptavini og birgja eins og hann væri okkar eini og setjum aðeins þau vörumerki á markað sem eru, eða hafa möguleika á að vera, fremst í sínum flokki.
Við erum keppnis, gerum hlutina fyrr og betur en aðrir og leggjum metnað í að skapa eftirsóttasta vinnustað landsins.
Markmið Ölgerðarinnar er að hafa yfir að ráða vel menntuðu, hæfu og áhugasömu starfsfólki sem sameiginlega skapar metnaðarfullt og jákvætt vinnuumhverfi. Starfsfólk Ölgerðarinnar stefnir samstíga í átt að framtíðarsýn fyrirtækisins, að verða fyrsta val viðskiptavina og neytenda. Fjölbreyttur bakgrunnur starfsmanna gerir vinnustaðinn skemmtilegan.

Sumarstarf í þjónustudeild Ölgerðarinnar
Ölgerðin leitar eftir öflugri og jákvæðri manneskju í þjónustudeild til að sinna hreinsunum og viðhaldi á bjórdælum Ölgerðarinnar í sumar.
Um er að ræða starf við hreinsun bjórdæla ásamt minni háttar viðhaldi og viðgerðum þeirra, á börum, skyndibitastöðum og veitingahúsum í Reykjavík og nærsveitum.
Svæðið sem starfið nær til:
- Höfuðborgarsvæðis
- Suðurnesja
- Selfoss og Hveragerði
- Hellu og Hvolsvöll
- Uppsveitir Árnessýslu
- Borgarfjarðar
- Snæfellsnes
- Suðurland að Vík í Mýrdal
Starfsfólk þjónustudeildar er almennt mikið á ferðinni og þarf starfsfólk að hafa bílpróf. Vinnutími er að jafnan frá 8:00-16:00 en er oft lengri eftir dögum og svæðum.
Hæfniskröfur
- Rík þjónustulund og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Almennt verkvit, og reynsla af minni háttar viðgerðum kostur.
- Útsjónarsemi.
- Stundvísi og góð framkoma
- Góð samskiptahæfni
- Samviskusemi og jákvæðni
- Góð íslensku- og ensku kunnátta
- Geta unnið undir álagi.
- Reglusemi og snyrtimennska
- Bílpróf
- Hreint sakarvottorð
Viðkomandi þarf að getað hafið störf ekki seinna en 26. maí nk. og unnið til og með 21. ágúst.
Ath að ekki er möguleiki að taka frí frá vinnu á umræddum tíma.
Umsóknarfrestur er til og með 15. maí
Við hvetjum fólk af öllum kynjum að sækja um
Auglýsing birt8. apríl 2026
Umsóknarfrestur15. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Grjótháls 7-11, 110 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (8)

Tæknimaður í umsjón og viðhaldi vélbúnaðar við tæknideild
Coripharma ehf.

Tæknimaður - Kæli- og frystibúnaður
Fossraf ehf

Tæknimaður í kaffiþjónustudeild hjá Ölgerðinni
Ölgerðin

Tæknimaður í þjónustu drykkjartækja
Fastus

Bifvélavirki - Mechanic
Camper Iceland

Tæknimaður heilbrigðistækja
Fastus

Rafvirki, rafeindavirki eða tæknimaður.
Lektra ehf.

Bifvélavirki eða maður vanur viðgerðum á stórum bifreiðum.
Teitur