
Sumarstörf - Kópavogsbær
Kópavogsbær býður upp á fjölbreytt sumarstörf á hverju ári fyrir 18 ára og eldri. Í boði eru m.a. störf í Þjónustumiðstöð, garðyrkju, skógrækt, sundlaugum, íþróttavöllum, sumarnámskeiðum fyrir börn, skapandi sumarstörf og á bæjarskrifstofum svo eitthvað sé nefnt.

Sumarstarf í Furugrund
Leikskólinn Furugrund óskar eftir liðsauka í skemmtilegt sumarstarf.
Leitað er að ábyrgum og jákvæðum einstaklingi sem á auðvelt með mannleg samskipti.
Leikskólinn Furugrund er staðsettur á frábærum stað í Fossvogsdalnum í Kópavogi.
Í leikskólanum er mikill mannauður og hér starfar hátt hlutfall kennara. Við bjóðum upp á lifandi og skemmtilegt vinnuumhverfi og erum mikið útivið yfir sumartímann.
Helstu áherslur leikskólans eru að rækta með börnunum jákvæða sjálfsmynd og góða tilfinningagreind. Sérstök áhersla er lögð á Jákvæðan aga og Lausnahringinn.
Einkunnarorð skólans eru virðing, hlýja, öryggi og traust og er það rauði þráðurinn í öllu okkar starfi.
Upplýsingar um leikskólann má finna á heimasíðunni: http://furugrund.kopavogur.is
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þátttaka í leik og starfi með börnunum.
- Sinnir þeim verkefnum er varða uppeldi og menntun barnanna sem yfirmaður felur honum.
- Samskipti við foreldra og forráðamenn barna.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Umsækjendur þurfa að vera orðnir 18 ára þegar þeir hefja störf.
- Góð samskiptahæfni.
- Frumkvæði, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð.
- Góð íslenskukunnátta nauðsynleg.
- Reynsla af vinnu með börnum er kostur.
Auglýsing birt23. mars 2026
Umsóknarfrestur6. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Furugrund 1, 200 Kópavogur
Furugrund 3, 200 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiJákvæðniSjálfstæð vinnubrögðSkipulagSveigjanleiki
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Kennari óskast á miðstig í Snælandsskóla
Snælandsskóli

Leikskólakennari í leikskólann Núp
Núpur

Stuðningsfulltrúi óskast í Þorláksskóla
Þorláksskóli

Umsjónarkennari á miðstigi í Álfhólsskóla
Álfhólsskóli

Leikskólakennari óskast
Sveitarfélagið Strandabyggð

Leikskólakennari - leikskólinn Geislabaugur
Leikskólinn Geislabaugur

Leikskólakennari eða leiðbeinandi óskast til starfa
Leikskólinn Garðasel

Leikskólinn Naustatjörn: Leikskólakennari eða háskólamenntaður starfsmaður
Akureyri

Leikskólinn Naustatjörn: starfsmaður í leikskóla
Akureyri

Umsjónarkennari á yngsta stigi – Hvaleyrarskóli
Hafnarfjarðarbær

Deildarstjóri í Leikskólann Lundarsel-Pálmholt
Akureyri

Stuðningsfulltrúi óskast við Rimaskóla
Rimaskóli