Kópavogsbær
Kópavogsbær
Kópavogsbær

Sumarstarf - Flokkstjóri við Vinnuskóla

Vinnuskóli Kópavogs starfar í júní og júlí ár hvert. Þar gefst 14 - 17 ára unglingum (fæðingarár 2003 – 2006) kostur á að vinna við fjölbreytt störf hjá bæjarfélaginu. Vinna í skólanum er í senn uppeldi, afþreying og tekjusköpun fyrir unglingana. Í skólanum er unglingum kennt að umgangast verkefni sín, notkun verkfæra og að bera virðingu fyrir samstarfsfólki sínu.

Í Vinnuskólanum og Skólagörðunum starfa rúmlega 60 starfsmenn (yfirflokkstjórar, flokkstjórar, aðstoðarflokkstjórar ásamt starfsfólki á skrifstofu). Um 950 unglingar starfa í Vinnuskólanum og um 200 börn eru í Skólagörðunum.

Helstu verkefni og ábyrgð

Flokkstjóri starfar undir stjórn yfirflokkstjóra. Hann stýrir starfi unglinganna, kennir þeim rétt vinnubrögð, er uppbyggilegur og til fyrirmyndar. Flokkstjóri ber að vinna með unglingunum. Hann ber ábyrgð á tímaskýrslum unglinganna og annarri pappírsvinnu sem til fellur. Einnig felur starfið í sér að fylgjast með að öryggisatriðum sé fylgt eftir í Vinnuskólanum.

Hæfniskröfur

Æskilegt er að umsækjendur hafi reynslu af starfi með unglingum og hafi náð 20 ára aldri. Stundvísi og góð mæting eru skilyrði. Vinnuskólinn er tóbakslaus vinnustaður.

Frekari upplýsingar

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Kópavogsbæjar og Starfsmannafélags Kópavogs.

Nánari upplýsingar veitir Svavar Pétursson, verkefnastjóra Vinnuskólans, í síma 441-9080.

Auglýsing birt1. mars 2020
Umsóknarfrestur31. mars 2020
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Fannborg 2, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar