Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Sumarstarf á heimili fyrir fatlað fólk - Smárahvammur

Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öfluga sumarstarfsmenn í lærdómsríkt starf við þjónustu á heimili fatlaðs fólks. Unnið er eftir hugmyndafræði þjónandi leiðsagnar, með áherslu á að íbúum líði sem best.

Spennandi og skemmtilegt starf, með fjölbreyttum verkefnum í vaktavinnu. Um er að ræða 70%-100% starf eða eftir samkomulagi og þarf viðkomandi að geta unnið morgun-, kvöld-, nætur og helgarvaktir.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Veita þjónustunotendum stuðning við athafnir daglegs lífs
  • Fylgja þjónustuáætlunum og verklagsreglum
  • Virkja íbúa til þátttöku í samfélaginu og tómstundum
  • Hafa gaman í vinnunni og vera öðrum fyrirmynd
  • Sinna heimilisstörfum
  • Samskipti við ýmsa þjónustuaðila
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reynsla af sambærilegu starfi æskileg
  • Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
  • Íslenskukunnátta skilyrði, A2 tungumálastaðall ETM sjálsmatsrammi (coe.int)
  • Þjónustulund og jákvæðni í starfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Ágætis tölvukunnátta
  • Ökuréttindi skilyrði
  • Aðgengi að ökutæki skilyrði
  • Sjálfstæð vinnubrögð og sveigjanleiki í starfi
  • Líkamleg geta til þess að sinna verkefnum á vinnustað

Æskilegt er að hafa náð 20 ára aldri, en skilyrði er að hafa hreint sakavottorð.

Umsókn fylgi greinargóð ferilskrá.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Ingibjörg Ólafsdóttir, forstöðuþroskaþjálfi á netfangið [email protected] eða í síma 585-5765.

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.

Umsóknarfrestur er til og með 31. mars 2026.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins

Auglýsing birt19. mars 2026
Umsóknarfrestur31. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Smárahvammur 3, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar