Kópavogsbær
Kópavogsbær
Kópavogsbær

Sumarstarf á heimili fatlaðs fólks

Starfsmenn óskast á heimili fatlaðs fólks í Kópavogi

Velferðarsvið Kópavogs óskar eftir starfsmönnum, 18 ára eða eldri, til starfa á heimili fatlaðs fólks í Kópavogi. Markmið þjónustu við fatlað fólk hjá Kópavogsbæ er að veita persónulegan stuðning og einstaklingsmiðaða og sveigjanlega þjónustu sem skal tryggja fötluðu fólki jafnrétti og sambærileg lífskjör á við aðra íbúa bæjarins.

Um er að ræða sumarstarf í vaktavinnu.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Tveggja ára nám í framhaldsskóla og/eða reynsla sem nýtist í starfi.
  • Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu af starfi með fötluðu fólki.
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Góð íslenskukunnátta.
  • Bílpróf er nauðsynlegt.
  • Framtakssemi, frumkvæði og jákvætt viðhorf í starfi.

Starfað er í anda þeirra meginhugmynda er birtast í lögum um málefni fatlaðs fólks.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Einstaklingsmiðaður persónulegur stuðningur við íbúa í þeirra daglega lífi, jafnt innan sem utan heimilis.
  • Almenn heimilisstörf.
  • Samvinna við samstarfsfólk, aðstandendur og aðra þjónustuaðila íbúa.

Frekari upplýsingar:
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og Starfsmannafélags Kópavogs.

Þeir sem ráðnir eru til starfa hjá Velferðarsviði Kópavogs þurfa að skila sakavottorði eða veita heimild til að leitað sé upplýsinga af sakaskrá.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigríður Hildur Snæbjörnsdóttir forstöðumaður í síma 564-2229.

Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um starfið.

Auglýsing birt13. mars 2020
Umsóknarfrestur30. mars 2020
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Skjólbraut 1A, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar