Kópavogsbær
Kópavogsbær
Kópavogsbær

Sumarstarf á heimili fatlaðra

Velferðarsvið Kópavogs óskar eftir starfsmönnum til starfa í sumarafleysingar.

Um er að ræða fjölbreytt og skemmtileg störf á heimili fatlaðs fólks.

Um er að ræða störf í 80% starfshlutfalli við afleysingar í blandaðri vaktavinnu frá miðjum maí / byrjun júní til ágústloka.

Hæfniskröfur

  • Reynsla af vinnu með fötluðu fólki er kostur
  • Góð íslenskukunnátta er nauðsynleg
  • Hæfni í samskiptum og samstarfshæfileikar
  • Framtakssemi og sjálfsstæði
  • Jákvæðni og sveigjanleiki í starfi
  • Helstu verkefni og ábyrgð

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Einstaklingsmiðaður, persónulegur stuðningur við íbúa við allar athafnir daglegs lífs, bæði heima við sem og í námi, leik og starfi
  • Vera góð fyrirmynd
  • Stuðla að auknu sjálfstæði íbúa
  • Samvinna við samstarfsmenn og aðstandendur
  • Fjölbreytt og krefjandi verkefni á skemmtilegum vinnustað.

Laun eru skv. kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Kópavogs.

Þeir sem ráðnir eru til starfa hjá Velferðarsviði Kópavogsbæjar þurfa að skila sakavottorði eða veita heimild til að leitað sé upplýsinga af sakaskrá.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Anna Margrét Gunnarsdóttir forstöðumaður.



Auglýsing birt8. febrúar 2020
Umsóknarfrestur29. febrúar 2020
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Fannborg 6, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar