

Stuðningsfulltrúi við Barnaskólann á Eyrarbakka og Stokkseyri
Við óskum eftir stuðningsfulltrúa í 77% afleysingastöðu frá þessum degi til og með 12. júní 2026 við Barnaskólann á Eyrarbakka og Stokkseyri. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Í Barnaskólanum eru 136 nemendur í 1. - 10. bekk. Skólinn starfar á tveimur starfsstöðvum, yngra stig á Stokkseyri og eldra stig á Eyrarbakka. Sérstaða skólans felst í einstaklingsmiðaðri kennslu, skapandi greinar fá mikið vægi í skólastarfinu, mikil áhersla lögð á góð samskipti, gott samstarf er við leikskólann og áhersla er lögð á góða samvinnu við nærumhverfið. Skólinn er Erasmus+ skóli, heilsueflandi grunnskóli og er í þróunarvinnu varðandi teymiskennslu, stafræna menntun, umhverfismennt og skólasýn. Skólinn er virkur þátttakandi í Lærdómssamfélagi Árborgar og í öflugu samstarfi við aðra grunnskóla í Árborg.
Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1000 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.
- Aðstoðar nemendur við daglegar athafnir og virka þátttöku í skólastarfi.
- Vinnur skv. áætlun kennara.
- Aðstoðar nemendur við að ná settum markmiðum samkvæmt Aðalnámskrá eða einstaklingsnámskrá undir leiðsögn kennara.
- Aðstoðar nemendur við að fylgja settum reglum um hegðun, umgengni og vinnubrögð.
- Aðstoðar nemendur við að klæðast, matast og aðrar athafnir daglegs lífs þurfi þeir á aðstoð að halda.
- Veitir nemendum félagslegan stuðning með virkri hlustun og spjalli ef aðstæður leyfa. Fylgir einum eð afleiri nemendum á ferðum þeirra í skipulögðu skólastarfi.
- Situr fundi eftir því sem við á
- Formleg próf af styttri námsbraut er æskileg, s.s. stuðningsfulltrúanám.
- Góð færni í mannlegum samskiptum.
- Reynsla af uppeldisstörfum er kostur.
- Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku.
Íslenska










