Brekkubæjarskóli
Brekkubæjarskóli

Stuðningsfulltrúar í Brekkubæjarskóla

Brekkubæjarskóli er annar tveggja heildstæðra grunnskóla á Akranesi. Nemendur skólans eru um 470 talsins, en starfsmenn um 100. Að auki státar skólinn af þéttriðnu neti stoðþjónustu.

Brekkubæjarskóli auglýsir lausar til umsóknar stöður stuðningsfulltrúa skólaárið 2024 - 2025.  Ráðið er í stöðurnar frá 12. ágúst nk.

Um er að ræða 50 - 75% stöður og vinnutími er frá 08:00-12:00/14:00. Möguleiki er á að bæta stöðuhlutfall með vinnu í frístund. 

Stuðningsfulltrúi vinnur í bekkjarteymi með kennurum og fagaðilum, sem skipuleggur stuðning og þjónustu við nemendur. Starfið miðar fyrst og fremst að því að auka færni og sjálfstæði nemenda, félagslega, námslega og í daglegum athöfnum. Verkefni eru meðal annars:

  • Aðstoðar nemendur við daglegar athafnir og þátttöku í skólastarfi.
  • Aðstoðar nemendur við að ná settum viðmiðum samkvæmt skólanámskrá/ einstaklingsnámskrá undir leiðsögn kennara, þroskaþjálfa, iðjuþjálfa og/eða skólastjórnendur.
  • Leitast við að styðja nemendur í félagslegum samskiptum í skólastarfinu.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla og áhugi af starfi með börnum og unglingum.
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Jákvætt viðmót og góð hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Stundvísi og samviskusemi.
  • Góð íslenskukunnátta.
  • Óbilandi trú á réttindum barna og ungmenna og áhugi á að starfa með þeim.
Auglýsing stofnuð23. apríl 2024
Umsóknarfrestur7. maí 2024
Tungumálakunnátta
ÍslenskaÍslenskaFramúrskarandi
Staðsetning
Vesturgata 120, 300 Akranes
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.SamvinnaPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Stundvísi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar