
Steypustöðin
Steypustöðin var stofnuð árið 1947 og eru aðalstöðvar félagsins á Malarhöfða 10 Reykjavík.
Steypustöðin er með útibú á nokkrum stöðum eins og Hafnarfirði, Selfossi, Helguvík, Borgarnesi og Þorlákshöfn ásamt tveimur færanlegum Steypustöðvum.
Eins og nafnið gefur kynna til er meginstarfssemi félagsins framleiðsla og afhending á steypu. Félagið rekur einnig helluverksmiðju, flotbíla fyrir flotmúr, múrverslun, efnisvinnslu og stærstu einingaverksmiðju landsins í Borgarnesi.
Hjá félaginu starfa nú um 300 starfsmenn

Steypubílstjóri
Steypustöðin leitar að sterkum og jákvæðum steypubílstjóra. Um er að ræða tímabundin samning með möguleika á áframhaldi starfi. Ef þú hefur gaman að keyra, sýnir frumkvæði og vinnur vel undir álagi, þá gæti þetta mögulega verið rétta starfið fyrir þig.
Starfið felst að mestu leyti í akstri á steypubíl. Meiraprófsréttindi C eru því lágmarkskrafa. Við leitum að metnaðarfullum og drífandi einstakling inn í okkar góða teymi. Viðkomandi þarf að vera tilbúinn til að takast á við nýjar og fjölbreyttar áskoranir í góðum hóp.
Við hvetjum öll kyn og þjóðerni til að sækja um.
Kostur er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Útkeyrsla steypu
- Dæling á steypu
- Samskipti við viðskiptavini á verkstað
- Umsjón með steypubíl
- Umsjón með steypudælu
- Vera vakandi yfir gæðum framleiðsluvöru
- Önnur tilfallandi störf í samstarfi við yfirmann
Menntunar- og hæfniskröfur
- Gilt meiraprófsréttindi
- Góð íslenskukunnátta kostur
- Góð enskukunnátta skilyrði
- Sjálfstæði og frumkvæði í starfi
- Eftirfylgni og nákvæmni í vinnubrögðum
- Mikil færni í mannlegum samskiptum
Fríðindi í starfi
- Hádegismatur
- Fjölbreytt verkefni
- Námskeið og fræðsla
- Jákvætt og hvetjandi vinnuumhverfi
- Líkamsræktarstyrkur
Auglýsing birt2. júlí 2024
Umsóknarfrestur14. júlí 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Malarhöfði 10, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Meirapróf CSamviskusemiÚtkeyrsla
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Reykjavík: Bifvélavirki/vélvirki óskast 🔧
Íslenska gámafélagið ehf.

Pökkunar og Flutningamaður óskast
Pökkun & Flutningar ehf

Lagerstarfsmaður með meirapróf óskast
AB Varahlutir

Sölumaður í verslun
Dynjandi ehf

Shipping and Logistics Coordinator
JBT Marel

Starfsmaður á verkstæði: Bifvélavirki / vélvirki
Intellecta

Tímabundin störf í nóvember og desember.
Dropp

Ljósameistarann vantar fleiri hendur á verkstæði
Ljósameistarinn ehf

meiraprófs bílsstjóri
Íslandsfrakt ehf.

Söluráðgjafi rafbúnaðar hjá Johan Rönning í Reykjanesbæ
Johan Rönning

Stöðvarstjóri á Selfossi
Frumherji hf

Tengdu þig við okkur - rafvirki á Hvolsvelli
Rarik ohf.