

Stefnumótun- og rekstrarráðgjöf
Fjármálaráðgjöf Deloitte leitar að öflugum starfsmanni til að bætast í hóp reyndra ráðgjafa á sviði stefnumótunar- og rekstrarráðgjafar. Við leitum eftir framsæknum einstaklingi sem vill starfa í krefjandi umhverfi og hefur metnað til að ná árangri í starfi.
Hæfniskröfur:
- Meistaragráða á sviði viðskipta, hagfræði, verkfræði eða skyldra greina
- Starfsreynsla í alþjóðlegri ráðgjöf æskileg
- Greiningarhæfni og hæfni til að setja fram efni á skýran og skilmerkilegan hátt
- Geta til að tjá sig í ræðu og riti, á íslensku og ensku
- Áhugi á viðskiptum, stjórnun og framsetningu upplýsinga
- Metnaður og áhugi til að læra og þróast í starfi í gegnum krefjandi verkefni á innlendum og alþjóðlegum vettvangi
Fjármálaráðgjöf Deloitte veitir fyrirtækjum og opinberum aðilum fjölbreytta þjónustu og ráðgjöf. Ráðgjafar vinna náið með viðskiptavinum og veita virðisaukandi þjónustu í hæsta gæðaflokki, sem skilar árangri og skilur eftir verðmæta þekkingu hjá viðskiptavinum.
Helstu verkefni Fjármálaráðgjafar Deloitte eru:
- Aðstoð við kaup og söluferli fyrirtækja
- Framkvæmd áreiðanleikakannana og úttektir á rekstri og fjármálum fyrirtækja
- Stefnumótun og rekstrarráðgjöf
- Verðmat fyrirtækja og rekstrareininga
- Endurskipulagning fyrirtækja
- Ráðgjöf við innviðafjárfestingar
Um Deloitte - Viltu hafa áhrif?
Deloitte er eitt stærsta ráðgjafarfyrirtæki heims, er leiðandi í faglegri þjónustu, skapar tækifæri og varðar leiðina að sjálfbærari heim. Ráðgjafar Deloitte á Íslandi starfa náið með erlendum sérfræðingum Deloitte, við innlend og erlend verkefni. Hjá Deloitte á Íslandi starfa um 270 manns við endurskoðun, reikningsskil og viðskiptalausnir, sem og ráðgjöf á sviði fjármála, skatta, áhættu, lögfræði og tækni.
Starfsþróun þín
Hjá Deloitte leggjum við áherslu á að hjálpa starfsfólki að bera kennsl á styrkleika sína og nýta þá í starfi. Með lærdómi og stuðningi innan fyrirtækisins og starfsþróunarnámskeiðum, færðu fjölbreytt tækifæri til að læra og þróast í þínu starfi.
Á hverjum degi munu störf þín hafa áhrif meðan þú dafnar í góðu starfsumhverfi sem einkennist af heilindum, virðingu, samvinnu og árangri. Við leitumst ekki bara við að finna lausnir, við viljum hafa áhrif sem skapa jákvæðan og mikilvægan mun fyrir fólkið í kringum okkur, viðskiptavini og samfélagið.
Við hlökkum til að fá umsókn þína
Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst. Tekið er á móti umsóknum í gegnum heimasíðu Deloitte, www.deloitte.is, til og með 20. september 2021.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Björgvin Ingi Ólafsson ([email protected]) eða ráðgjafar mannauðs ([email protected]).











