Andrastaðir
Andrastaðir
Andrastaðir

Starfsmenn óskast í búsetukjarna

Andrastaðir óska eftir drífandi karlmönnum með mikið frumkvæði til vinnu á nýju heimili fyrir einstaklinga með fjölþættan vanda á Kjalarnesi.

Um er að ræða vaktavinnu og starfshlutfall er frá 70-100% eftir samkomulagi. Unnið er á fjölbreyttum vöktum, morgun- kvöld og/eða næturvöktum. Spennandi tækifæri til að taka þátt í uppbyggingu og þróun Andrastaða.

Best væri ef starfsfólk gæti hafið störf sem fyrst.

Fyrir frekari upplýsingar um starfið er hægt að hafa samband á netfangið [email protected]

Menntunar- og hæfniskröfur
Hæfni til að leita lausna og vinna úr vandamálum
Háskólamenntun sem nýtist í starfi er kostur
Reynsla af vinnu með geðfötluðum æskileg
Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum
Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
Góð íslenskukunnátta
Hreint sakavottorð
Bílpróf skilyrði
Helstu verkefni og ábyrgð
Hvetja og styðja þjónustuþega til sjálfshjálpar og félagslegrar virkni
Félagslegur stuðningur við þjónustuþega
Aðstoð við þjónustuþega í daglegum störfum heimilisins s.s. þrif, matseld o.fl.
Þátttaka í sköpun og þróun nýrra tækifæra fyrir þjónustuþega
Styðja þjónustuþega í undirbúningi fyrir atvinnulífið, s.s. með námi eða vinnuþjálfun
Auglýsing birt16. nóvember 2022
Umsóknarfrestur16. desember 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Hólaland.
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar