
Akraneskaupstaður
Akranes er stærsta sveitarfélag Vesturlands með rúmlega 8.500 íbúa.
Hjá Akraneskaupstað starfa tæplega 800 manns í 20 stofnunum. Bærinn rekur tvo grunnskóla, fjóra leikskóla, frístundastörf, búsetukjarna, miðlæga skrifstofu, tónlistarskóla, bókasafn, slökkvilið og byggðasafn svo fátt eitt sé nefnt. Akranes er framsækið sveitarfélag sem hefur jákvæðni, metnað og víðsýni að leiðarljósi í þjónustu og uppbyggingu sveitarfélagsins.
Akranes er einstaklega fjölskylduvænt bæjarfélag þar sem gott er að búa og ala upp börn. Bærinn er bæði heilsueflandi og barnvænt samfélag og framfylgir stefnu um slíkt. Það sem einkennir Akranes er flatlendi þess og er því mjög þægilegt að ganga og hjóla um bæinn. Auk þess eru möguleikar til útivistar fjölbreyttir og stutt í ósnortna náttúru.

Starfsmenn í íþróttamannvirkjum
Akraneskaupsstaður auglýsir eftir konu í afleysingu í íþróttamannvirki Akraness.
Einnig er laust til umsóknar framtíðarstarf fyrir karlmann.
Starfið gegnir mikilvægu hlutverki í þjónustu við börn og fullorðna.
Áhersla er lögð á góða samskiptahæfni, sveigjanleika og þjónustulund.
Viðkomandi þarf að vera 18 ára eða eldri
Unnið er í teymum/vöktum. Verið er að vinna að því að bæta vinnu umhverfið og tók stytting vinnuvikunnar gildi 1. maí 2021.
Menntunar- og hæfniskröfur
Stundvísi, jákvæðni og færni í mannlegum samskiptum
Reynsla af þjónustustörfum kostur
Menntun sem nýtist í starfi
Góð íslensku kunnátta
Umsækjandi þarf að fara á námskeið í skyndihjálp
Umsækjandi þarf að standast hæfnispróf sundstaða
Helstu verkefni og ábyrgð
Sundlaugargæsla
Aðstoð við skólabörn, fyrir og eftir kennslu
Almenn afgreiðsla
Almenn þrif í mannvirkjunum
Taka á móti, leysa úr og/eða koma áfram þeim ábendingum sem berast frá viðskiptavinum.
Auglýsing birt7. september 2022
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Stillholt 16-18 16R, 300 Akranes
Starfstegund
Hæfni
AfgreiðslaJákvæðniSkyndihjálpSundÞjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)

Marketing Assistant
Costco Wholesale

Baðvarsla stúlkna - Setbergsskóli
Hafnarfjarðarbær

Lagerstarf
Mekka Wines & Spirits hf

Starfsmaður á kassa & áfyllingar
Melabúðin

Nettó Höfn í Hornafirði leitar að starfsfólki í tvö störf við áfyllingu kvöld/nætur.
Nettó

Sölufólk óskast í verslanir okkar
NTC ehf

Sundlaugarvörður, tímabundið starf
Akraneskaupstaður

Erum við að leita að þér?
The House of Beauty

Næturvörður óskast / Night guard wanted, 360 Hótel Selfoss
360 Hótel

Hlutastörf í hlaðdeild á Keflavíkurflugvelli
Airport Associates

KFC í borginni
KFC ehf.

Aðstoðarmaður á læknastofur
Læknastofur Reykjavíkur