Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Starfsmaður vatnsveitu

Laus er til umsóknar staða starfsmanns vatnsveitu Hafnarfjarðar. Starfsmaður vatnsveitu aðstoðar við viðhalds- og eftirlitsverkefni sem honum eru falin. Hann fylgir eftir samþykktum verkferlum og stöðlum fyrir vatnsveitu bæjarins. Viðkomandi ber ábyrgð á viðhalds- og eftirlitsverkefnum sem honum eru falin ásamt ábyrgð á öllum áhöldum og búnaði vatnsveitu sem unnið er með og að öll umgengni sé til fyrirmyndar. Um er að ræða 100% starf. Starfið heyrir undir umhverfis- og skipulagssvið sem er með aðsetur að Norðurhellu 2.

Menntunar- og hæfniskröfur
Góð reynsla af sambærilegu starfi
Æskilegt að hafa lokið jarðlagnanámskeiði
Samstarfs- og samskiptahæfni, þjónustulund
Frumkvæði, sjálfstæði og skipulagshæfni
Geta til að vinna undir álagi
Hæfni til að aðlagast breyttum aðstæðum
Líkamlega fær um að sinna þeim verkefnum sem starfið felur í sér
Almenn tölvukunátta og geta til að tileinka sér tækninýjungar
Íslensku- og enskukunnátta
Ökuréttindi
Helstu verkefni og ábyrgð
Viðhald og eftirlit með vatnsveitukerfi, dælustöðvum, miðlunargeymi og lokahúsum
Viðhald, viðgerðir og eftirlit með dreifikerfi vatnsveitu Hafnarfjarðar
Endurnýjun á gömlum heimæðum og lagning á nýjum
Umsjón, eftirlit, viðhald og viðgerðir í vatnsbólinu í Kaldárseli
Álestur og utanumhald aflestra
Viðhald, viðgerðir og umsjón með brunahönum
Umsjón með öllum vatnsafgreiðslustútum fyrir höfnina
Lekaleit í veitukerfum
Árstíðabundin verkefni við opnun og lokun vatnslagna
Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Auglýsing birt12. september 2022
Umsóknarfrestur26. september 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Norðurhella 2, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar