
Málmsteypan
Málmsteypan er elsta starfandi endurvinnsla landsins og á sér yfir 80 ára sögu. Á þeim tíma hefur fyrirtækið þróast í takt við þarfir samfélagsins og er í dag eina járnsteypan á Íslandi og traustur samstarfsaðili í fráveitulausnum og innviðaverkefnum.
Kjarnastarfsemi Málmsteypunnar er að bjóða heildarlausnir í fráveitu. Við flytjum inn og seljum rör, brunna og tengihluti sem standast íslenskar aðstæður og endast í yfir 100 ár, samhliða okkar eigin framleiðslu á hágæða steypujárnsvörum þar sem brotajárn sem fellur til hérlendis er endurunnið í endingargóðar vörur.
Við störfum náið með verktökum, sveitarfélögum og byggingaraðilum um allt land og erum stolt af því að lausnir okkar liggi undir mörgum af stærstu framkvæmdum landsins. Sjálfbærni, áreiðanleiki og þjónusta eru leiðarljós okkar þegar við byggjum upp innviði framtíðar á Íslandi.

Starfsmaður óskast í vöruafgreiðslu hjá Málmsteypunni
Hjá Málmsteypunni trúum við því að góð þjónusta, áreiðanleiki og samvinna séu grunnurinn...
Við leitum nú að starfsmanni í afgreiðslu sem vill verða mikilvægur hluti af öflugu teymi og gegna lykilhlutverki í daglegu flæði fyrirtækisins.
Við leitum að einstaklingi sem hefur metnað fyrir góðu skipulagi og vönduðum vinnubrögðum, getur unnið sjálfstætt og tekið ábyrgð í starfi. Jafnframt er mikilvægt að viðkomandi eigi auðvelt með samstarf og geti tekist á við fjölbreytt verkefni, jafnvel þegar mikið er að gera.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Afgreiðsla pantana af lager
- Vörumóttaka
- Áfylling á millilagera
- Tiltekt, þrif og viðhald lagers
- Akstur
- Skráning
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Vinnuvélaréttindi
- Rík þjónustulund og jákvætt viðhorf
- Stundvísi, nákvæmni og áreiðanleiki
- Góð öryggis-, gæða og umhverfisvitund
- Sjálfstæð og fagleg vinnubrögð
Auglýsing birt17. mars 2026
Umsóknarfrestur31. mars 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaValkvætt
Staðsetning
Miðhraun 6, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
AfgreiðslaBirgðahaldLagerstörf
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Starfsmaður í pökkun
Lýsi

YAMAHA motor viðhald og viðgerðir
Aflvélar ehf.

Svæðisstjóri vöruhúss
Byko

Kjörbúðin Blönduósi - Umsjón með bakaríi
Kjörbúðin

Vöruhús / lager
Icetransport

Bifvélavirki, vélvirki
Aflvélar ehf.

Starfsmaður í vöruhúsi Keflavík - 50% starfshlutfall
DHL Express Iceland ehf

Starfsmaður í vöruhús
Raftækjalagerinn

Nettó Hrísalundi - umsjón
Nettó

Dreifingarmiðstöð - lagerstarfsmaður
Vínbúðin

Þjónustu og sölufulltrúi óskast til Johan Rönning
Johan Rönning

Þjónustufulltrúi í vöruhús Áltaks
Áltak