
Stilling
Stilling hf. var stofnuð 17. oktober 1960 sem sérhæft hemlaverkstæði. Stofnendur ásamt Bjarna Júlíussyni voru Þórður Júlíusson verkfræðingur sem átti upphaflega hugmynd að fyrirtækinu, Magnús Baldvinsson kenndur við í MEBA, Óskar Ólafsson vélstjóri og Benedikt Magnússyni kenndur við BM Vallá. Í dag er fyrirtækið leiðandi í sölu á varahlutum og aukahlutum í bíla. Stilling rekur fimm öflugar verslanir víðsvegar um landið en einnig er fyrirtækið með sérstakan gagnagrunn sem verslanir og bílaumboð geta pantað úr á heimasíðu Stillingar hf.
Stilling er eitt elsta varahlutafyrirtæki á Íslandi í dag.
Stilling er rótgróið fjölskyldufyrirtæki og hefur frá upphafi verið í eigu sömu fjölskyldu.
Stilling kappkostar að veita viðskiptavinum sínum um land allt vandaða og góða þjónustu. Fyrirtækið er með verslanir í Reykjavík, Hafnarfirði, Selfossi og á Akureyri. Þá er hægt að panta vörur úr gagnagrunni okkar af heimasíðunni Partanet.is Gagnagrunnurinn inniheldur vörur frá yfir 400 framleiðendum sem gerir viðskiptavinum kleift að finna réttan varahlut á auðveldan hátt. Pöntun á vöru er einstaklega auðveld, viðskiptavinurinn slær inn skráningarúmer bifreiðarinnar og finnur þá gagnagrunnurinn þann varahlut sem passar fullkomlega.

Starfsmaður í þjónustuveri
Við leitum að öflugum einstaklingi í þjónstuver okkur að Kletthálsi 5. Í þjónustuverinu eru 6 starfsmenn sem sinna ýmsum verkefnum en sérstaklega samskipti og afgreiðsla varahluta til viðskiptavina og þjónusta við þá. Vinnudagurinn er 8 tímar. Um framtíðarstarf er að ræða.
Menntunar- og hæfniskröfur
Góð tölvukunnátta.
Gott vald á íslenskri tungu og geta skrifað málfræðilega réttan texta.
Þekking og áhugi á bílum er kostur.
Reynsla af afgreiðslu á varahlutum eða reynsla í bifvélavirkjun kostur.
Sjálfstæð og vönduð vinnubrögð, rík þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum.
Helstu verkefni og ábyrgð
Tryggja viðskiptavinum okkar bestu mögulega þjónustu og afgreiðslu.
Símsvörun og samskipti í gegnum tölvupóst.
Afgreiðsla fyrirspurna og almenn þjónusta við viðskiptavini.
Skráning og eftirfylgni pantana.
Auglýsing birt7. september 2022
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Klettháls 5, 110 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Þjónusturáðgjafi í varahlutadeild
Bílaumboðið Askja

Sérfræðingur í þjónustu og sjálfvirknivæðingu
Creditinfo

Starfskraftur í Þjónustuver - Afleysing
Ó.Johnson & Kaaber

Starfsmaður í afgreiðslu.
Aðalskoðun hf.

Account Manager
Teitur

Þjónustufulltrúi | Dineout & Sinna
Dineout ehf.

Þjónustufulltrúi óskast hjá Hringdu!
Hringdu

Afgreiðslu- og móttökufulltrúi - fullt starf
Verkalýðsfélagið Hlíf

Þjónustufulltrúi / Service Agent
Campeasy

Þjónustu- og sölufulltrúi hjá Myigloo og Leiguskjóli
Leiguskjól

Sölumaður
Garðlist ehf

Þjónustumeistari (50%)
Straumlind ehf