Hilton Reykjavík Nordica
Hilton Reykjavík Nordica
Hilton Reykjavík Nordica

Starfsmaður í ráðstefnu- og hópadeild

Við leitum að þjónustulunduðum starfsmanni til að vera hluti af metnaðarfullu teymi til framtíðar við sölu og ráðgjöf til viðskiptavina okkar og úrvinnslu hópabókana, ráðstefnu og viðburða.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Úrvinnsla bókana frá söludeild
  • Tilboðsgerð fyrir ráðstefnur og fundi
  • Móttaka viðskiptavina og kynning á þjónustu hótelsins
  • Þjónusta við viðskiptavini og miðlun upplýsinga innanhúss
  • Utanumhald og eftirfylgni bókana
  • Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Góðir samskiptahæfileikar og rík þjónustulund
  • Þekking á Opera Sales and Catering kostur en ekki skilyrði
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
  • Snyrtimennska, stundvísi og sveigjanleiki
  • Jákvæðni og vilji til að taka að sér fjölbreytt verkefni
  • Framúrskarandi íslensku- og enskukunnátta


Nánari upplýsingar veitir Sigrún Jóna Norðdahl, Manager Sales Operation, [email protected]


Við hvetjum öll áhugasöm til að sækja um óháð kyni, aldri eða uppruna.
Umsóknarfrestur er til og með 7.7.2025


Iceland Hotel Collection By Berjaya er fyrirtæki sem starfar í alþjóðlegu umhverfi þar sem lögð er áhersla á samvinnu, sveigjanleika og frumkvæði í starfi. Hjá fyrirtækinu starfar samhentur ­hópur með sameiginleg markmið, þar sem borin er virðing fyrir gestum, samstarfsmönnum og náttúrunni.

Auglýsing birt27. júní 2025
Umsóknarfrestur7. júlí 2025
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar