Garri
Garri
Garri

Starfsmaður í öryggis- og eignaumsjón

Garri leitar að metnaðurfullum einstaklingi til þess að sinna fjölbreyttum störfum í öryggis- og eignaumsjón. Hjá Garra starfar skemmtilegur og metnaðarfullur hópur. Við leggjum áherslu á framúrskarandi þjónustu ásamt mikilvægi þess að hafa gaman í vinnunni og skapa góðar minningar.

Garri sérhæfir sig í innflutningi og sölu á gæðamatvöru, matvælaumbúðum og hreinlætislausnum fyrir veitingastaði, hótel, bakarí, mötuneyti, skóla og aðra opinbera aðila og fyrirtæki. Jafnframt sérhæfir Garri sig í heildarlausnum á rekstrar- og hreinlætisvörum fyrir fyrirtæki og opinberar stofnanir. Hjá Garra starfa um 100 starfsmenn með víðtæka hæfni og þekkingu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Uppsetning á tækjum og búnaði hjá viðskiptavinum
  • Viðhald og ýmis verkefni í húsnæði Garra
  • Virkur þátttakandi í þrifateymi vöruhúss
  • Reglubundið eftirlit með innréttingum og tækjum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Rík þjónustulund og vingjarnleg framkoma
  • Laghentur og reynsla af viðhalds- eða smíðavinnu
  • Samskipta- og samstarfshæfni
  • Sterk öryggisvitund
  • Nákvæmni og vandvirkni í vinnubrögðum
  • Stundvísi og áreiðanleiki
  • Góð íslensku- eða enskukunnátta
Auglýsing birt24. janúar 2025
Umsóknarfrestur7. febrúar 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Valkvætt
Meðalhæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Hádegismóar 1, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.HandlagniPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar