

Starfsmaður í móttöku
Iðan fræðslusetur leitar að jákvæðum, þjónustulunduðum og skipulögðum einstaklingum til starfa í móttöku þar sem námskeiðahald fer fram. Starfið felur í sér móttöku nemenda og leiðbeinenda á námskeiðum sem og að sjá um kaffistofu nemenda. Starfið getur einnig falið í sér svörun á fyrirspurnum í tölvupósti og í síma eftir atvikum.
Um er að ræða tímavinnu og möguleiki er á breytilegu starfshlutfalli og vinnutíma, þ.e. á daginn, kvöldin og um helgar.
-
Móttaka og þjónusta við nemendur og leiðbeinendur
-
Umsjón með kaffi- og matarveitingum við námskeiðahald
-
Frágangur í eldhúsi og sameiginlegum rýmum
-
Undirbúningur og frágangur kennslurýma eftir þörfum
-
Aðstoð við leiðbeinendur, m.a. vegna einfaldra tæknimála
-
Almenn tilfallandi verkefni tengd starfseminni
-
Rík þjónustulund og hæfni í samskiptum
-
Snyrtimennska og skipulögð vinnubrögð
-
Sjálfstæði í starfi og frumkvæði
-
Hæfni til að vinna í fjölbreyttu og hröðu starfsumhverfi
-
Grunnþekking á tölvum og einföldum tæknilausnum
-
Gott vald á íslensku og ensku
-
Hefur ánægju af því að vinna með fólki og veita góða þjónustu
-
Er jákvæður, lausnamiðaður og sveigjanlegur
-
Er stundvís og áreiðanlegur
-
Getur brugðist hratt við þegar upp koma ófyrirséðar aðstæður
Íslenska
Enska





