Starfsmaður í iðju- og félagsstarf - Ás í Hveragerði
Ás dvalar- og hjúkrunarheimili í Hveragerði leitar að duglegum og hressum starfsmanni í iðju- og félagsstarf.
Starfið er fjölbreytt og skemmtilegt og mikil áhersla er lögð á góða teymisvinnu. Um er að ræða dagvinnu og starfshlutfall er samkomulagsatriði.
Starfið er tilvalið fyrir nema í iðjuþjálfun, tómstundafræði og félagsvísindum.
Ás er fjölbreyttur og lifandi vinnustaður þar sem starfa rúmlega 200 manns. Áhersla er lögð á góðan starfsanda, sterka liðsheild og hvetjandi starfsumhverfi. Grundarheimilin fengu jafnlaunavottun árið 2020 og hvetjum við öll kyn til að sækja um.
Hæfniskröfur:
- Góð íslenskukunnátta
- Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi
- Góðir samskiptahæfileikar og jákvæðni
Fríðindi í starfi:
- Aðgangur að heilsustyrk
- Stytting vinnuvikunnar
- Öflugt starfsmannafélag
Greitt er eftir kjarasamningi viðeigandi stéttarfélags og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu.
Á Grundarheimilunum vinnur stór og samheldinn hópur starfsmanna að því að hlúa að öldruðum af alúð. Vellíðan, virðing og vinátta eru höfð að leiðarljósi í samskiptum og lögð er áhersla á góðan vinnuanda, sjálfstæð vinnubrögð og heimilislegt umhverfi.
Nánari upplýsingar um starfið veitir:
Fanney Björg Karlsdóttir yfiriðjuþjálfi, fanneybk@dvalaras.is og Mannauðsdeild Grundarheimilanna, mannaudur@grund.is
Við hlökkum til að heyra frá þér!