

Starfsmaður í býtibúr og ritarastarf
Hjarta-, lungna og augnskurðdeild 12G á Landspítala við Hringbraut óskar eftir að ráða jákvæðan og þjónustulundaðan starfsmann í býtibúr og ritarastarf. Viðkomandi þarf að hafa ríka samskipta- og samstarfshæfni og að eiga auðvelt með að vinna í teymi. Unnið er á kvöldin, virka daga og aðra hvora helgi. Starfið er laust frá 1. janúar 2023 eða eftir nánara samkomulagi, lágmarksaldur umsækjanda er 20 ár.
Hjarta-, lungna og augnskurðdeild er 14 rúma legudeild sem tilheyrir Hjarta- og æðaþjónustu og er staðsett á 2. hæð á Landspítala á Hringbraut.
Deildin er ætluð sjúklingum sem fara í hjarta-, lungna og/eða augnaðgerðir, sem og sjúklingum annarra sérgreina eftir aðstæðum. Áskoranirnar eru margar og fjölbreyttar.
Á deildinni starfar áhugasamur hópur ýmissa starfstétta s.s. lækna, hjúkrunarfræðinga, sjúkraliða, hjúkrunarritara og sérhæfðra starfsmanna, auk annarra stoðstétta sem koma eftir þörfum s.s. sjúkra- og iðjuþjálfar. Á deildinni er lögð áhersla á öryggi sjúklinga og starfsmanna, samvinnu teyma og stöðugar umbætur.
Við leggjum áherslu á að taka vel á móti nýjum starfsmönnum og veita góða og markvissa aðlögun.
Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er nú 36 stundir og getur orðið enn minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf, þannig að störf í vaktavinnu verði eftirsóknarverðari.



























