Domino's Pizza
Domino's Pizza
Domino's Pizza

Starfsmaður í bíla- og fasteignadeild

Við leitum að duglegum, jákvæðum og þjónustulunduðum einstaklingi í fullt starf í bíla- og fasteignadeild Domino’s. Um er að ræða fjölbreytt starf fyrir einstakling sem kann vel við að vera á ferðinni og leysa stór og smá verkefni.

Helstu verkefni:

  • Sinna og fylgja eftir viðhaldi og þjónustu á bifreiðum fyrirtækisins
  • Sinna og fylgja eftir ýmsum verkefnum tengdum fasteignum
  • Vera í samskiptum við verslunarstjóra og annað starfsfólk í verslunum Domino’s
  • Vera í samskiptum við verktaka, þjónustuaðila og aðra samstarfsaðila
  • Bregðast við ýmsum verkefnum sem koma upp í daglegum rekstri
  • Aðstoða við önnur verkefni deildarinnar eftir þörfum

Hæfnikröfur:

  • Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
  • Vera röskur, sveigjanlegur, handlaginn og lausnamiðaður
  • Góð samskiptahæfni og þjónustulund
  • Hafa gott skipulag, sýna frumkvæði og geta unnið sjálfstætt
  • Gilt bílpróf á beinskipta bíla

Nánari upplýsingar veitir Einar Hreiðarsson umsjónarmaður, [email protected]

Umsóknarfrestur er til og með 7. september 2026.

Auglýsing birt28. ágúst 2026
Umsóknarfrestur7. september 2026
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Lóuhólar 2-6, 111 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar