Húnaþing vestra
Húnaþing vestra
Húnaþing vestra

Umsjónarmaður veitna

Leitum að öflugum aðila til að sjá um veitur sveitarfélagsins. Starfið eru liður í heildarendurskoðun á störfum þjónustumiðstöðvar með það að markmiði að bæta þjónustu við íbúa. Við leitum að einstaklingi sem vill vera hluti af öflugu teymi starfsmanna þjónustumiðstöðvar, viðhalda innviðum sveitarfélagsins og þjónusta íbúa af alúð.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með veitum sveitarfélagsins, hitaveitu, vatnsveitu og fráveitu.
  • Úttektir og gerð viðhalds- og viðgerðaráætlana veitna í samvinnu við sviðsstjóra.
  • Viðhald og lagfæringar á veitum og mat á hvenær kalla þarf til iðnaðarmenn í samráði við sviðsstjóra.
  • Samskipti við verktaka varðandi nýframkvæmdir og viðhald veitna.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Æskilegt er að umsjónarmaður veitna hafi iðnmenntun sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af sambærilegum verkefnum og reynsla af mati á ástandi og viðhaldsþörf veitna er kostur.
  • Umsjónarmaður veitna skal búa yfir framúrskarandi þjónustulund, samskiptahæfileikum og færni til að eiga samskipti við starfsmenn, iðnaðarmenn og íbúa Húnaþings vestra.
  • Frumkvæði, skipulagshæfni, jákvæðni og sjálfstæð vinnubrögð eru skilyrði.
Auglýsing birt22. júlí 2026
Umsóknarfrestur16. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Búland 3B, 530 Hvammstangi
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar