Menntasjóður námsmanna
Menntasjóður námsmanna

Starfsmaður í afgreiðsludeild

Menntasjóður námsmanna (MSNM) óskar eftir að ráða öflugan einstakling í starf í afgreiðsludeild sjóðsins. Um fullt starf er að ræða og eru verkefnin fjölbreytt.

Helstu verkefni:

  • Móttaka viðskiptavina
  • Svörun almennra fyrirspurna í móttöku sjóðsins
  • Flokkun, skönnun og skráning skjala og tölvupósts
  • Símsvörun á skiptiborði


Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Stúdentspróf eða önnur sambærileg menntun
  • Þjónustulund, jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
  • Góð tölvukunnátta og færni í íslensku í ræðu og riti


Menntasjóður námsmanna er félagslegur jöfnunarsjóður sem hefur það að markmiði að tryggja námsmönnum í lánshæfu námi jöfn tækifæri til náms, án tillits til efnahags og stöðu að öðru leyti, með því að veita námsmönnum fjárhagslega aðstoð í formi námslána og styrkja. Hjá MSNM starfa um 40 starfsmenn. Gildi sjóðsins eru: fagmennska, samstarf og framsækni.

Umsóknarfrestur er til og með 17. maí 2022. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf (hvort tveggja á íslensku), þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra við Fræðagarð stéttarfélag. Athygli er vakin á því að umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Upplýsingar veita Thelma Kristín Kvaran ([email protected]) og Hafdís Ósk Pétursdóttir ([email protected]) í síma 511 1225.

Auglýsing birt6. maí 2022
Umsóknarfrestur17. maí 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Borgartún 21, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar