Kópavogsbær
Kópavogsbær
Kópavogsbær

Starfsmaður á vinnustað fyrir fatlað fólk

Velferðarsvið Kópavogsbæjar óskar eftir starfsmanni til starfa í dagvinnu á hæfingarstöð fyrir fatlað fólk í Kópavogi.

Vinnustaðurinn leitar að drífandi og áhugasömu starfsfólki til að takast á við fjölbreytt verkefni í sveigjanlegu og skemmtilegu vinnuumhverfi.

Starfshlutfall og ráðningartími

  • Vinnutími er frá kl. 11.30 – 16:00.
  • Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Góð almenn menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Framtakssemi og jákvæðni í starfi
  • Starfið getur verið líkamlega krefjandi
  • Góð íslenskukunnátta
  • Umsækjandi þarf að hafa náð 20 ára aldri.

Helstu verkefni

  • Þátttaka í faglegu starfi
  • Einstaklingsmiðaður persónulegur stuðningur við notendur í starfi

Frekari upplýsingar

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og Starfsmannafélags Kópavogs.

Þeir sem ráðnir eru til starfa hjá velferðarsviði Kópavogs þurfa að skila sakavottorði eða veita heimild til að leitað sé upplýsinga af sakaskrá.

Upplýsingar gefur Hildur Ómarsdóttir, yfirþroskaþjálfi, í síma 441-9821. Eða sendið á netfangið [email protected]

Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um starfið.

Auglýsing birt11. október 2021
Umsóknarfrestur21. október 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Fannborg 2, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar