Freyja
Freyja

Starfsmaður á lager í sumarafleysingar

Freyja er elsta starfandi sælgætisgerð á Íslandi sem framleiðir og markaðssetur ótal vörutegundir af gómsætu sælgæti á heimsmælikvarða bæði á Íslandi og erlendis. Hjá Freyju starfa um 50 manns af öllum uppruna á tveimur stöðum, í verksmiðju fyrirtækisins á Kársnesbraut í Kópavogi og á skrifstofu- og lagerhúsnæði fyrirtækisins á Vesturvör í Kópavoginum.

Freyja leitar nú eftir ábyrgum og traustum einstaklingi sem náð hefur a.m.k. 20 ára aldri til afleysinga í sumar við tínslu á lager.

Starfið felst í tiltekt pantana og á lager fyrirtækisins og almenn dagleg umsjá með lager frá og með júní til ágúst.

Við leitum að kraftmiklum og duglegum einstaklingi sem hefur góða aðlögunarhæfni, ríka þjónustulund og með nákvæm og skipulögð vinnubrögð, getu til að starfa sjálfstætt og í góðu samstarfi við aðra starfsmenn.

Lyftarapróf er nauðsyn.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Tínsla á pöntunum
  • Önnur tilfallandi lagerstörf
  • Afgreiðsla pantana
  • Tiltekt á lager
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Vinnuvéla réttindi (lyftarapróf) nauðsynlegt
  • Meirapróf kostur
  • Stundvísi og skipulagshæfni
  • Góð færni í ensku
  • Framúrskarandi þjónustuvilji
Auglýsing stofnuð30. apríl 2024
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálakunnátta
EnskaEnskaMeðalhæfni
ÍslenskaÍslenskaMeðalhæfni
Staðsetning
Vesturvör 36, 200 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.LagerstörfPathCreated with Sketch.LyftaraprófPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar