Rými
Rými
Rými

Starfsmaður á lager

Við erum að stækka og leitum af öflugum einstakling í starf á lagernum hjá okkur. Viðkomandi þarf að tala góða íslensku, búa yfir miklum skipulagshæfileikum og getu til að vinna sjálfstætt. Mikill plús ef viðkomandi hefur lyftararéttindi.

Um 100% starf er að ræða frá 9-17 alla virka daga.

Við leitum eftir öflugum og þjónustuliprum einstaklingi sem er til í að takast á við spennandi og skemmtileg verkefni. Viðkomandi verður að vera ábyrgur og stundvís ásamt því að búa yfir hæfni til að starfa sjálfstætt.

Rými ehf. er fjölskyldufyrirtæki sem hefur verið starfandi frá árinu 1936 en við höfum verið framúrskarandi fyrirtæki á lista Creditinfo síðastliðin 7 ár. Hjá fyrirtækinu starfar samhentur hópur starfsfólks með áratuga reynslu af ráðgjöf, hönnun, þjónustu og uppsetningum á sviðum verslunarinnréttinga, lagerbúnaðar, skjalageymslutækni og búnaði fyrir iðnað, verkstæði, sveitarfélög og opinberar stofnanir.

Helstu verkefni og ábyrgð

Móttaka vörusendinga

Losun vörugáma

Tínsla og pökkun

Önnur almenn vöruhúsastörf og hilluuppsetningar

Menntunar- og hæfniskröfur

Góð íslenskukunnátta

Framúrskarandi skipulagshæfni

Sjálfstæð vinnubrögð

Góð hæfni í mannlegum samskiptum

Stundvísi, ábyrgð og drifkraftur

Lyftararéttindi

Fríðindi í starfi

Vinnufatnaður

Farsímaáskrift

Auglýsing birt21. október 2024
Umsóknarfrestur1. nóvember 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaFramúrskarandi
Staðsetning
Gylfaflöt 2-4 2R, 112 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn ökuréttindiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.LagerstörfPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Stundvísi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar