Dekkjahöllin ehf
Dekkjahöllin hefur verið í rekstri í um 40 ár. Dekkjahöllin er með starfstöðvar á Akureyri, Egilsstöðum og í Reykjavík. Fyrirtækið rekur hjólbarðaþjónustu á öllum starfstöðvum, smurstöðvar á Akureyri og Egilsstöðum og þvottastöð á Akureyri. Fyrirtækið er jafnframt innflutningsaðili sem starfar bæði á fyrirtækja og einstaklingsmarkaði. Dekkjahöllin er í eigu Vekra sem á m.a. Öskju, Lotus Car Rental, Sleggjuna og Hentar.
Í Dekkjahöllinni hefur ávallt verið lögð rík áhersla á fljóta og góða þjónustu. Jafnframt er áhersla á að selja úrval af vönduðum og góðum dekkjum fyrir kröfuharða ökumenn.
Mannauður fyrirtækisins er verðmætur og fjölmargir starfsmenn hafa fylgt fyrirtækinu í áratugi. Uppsöfnuð reynsla starfsmanna er gríðarleg. Til gamans má nefna að samanlagður starfsaldur þeirra 27 fastráðnu starfsmanna í lok árs 2020 voru tæp 275 ár eða 10 ár að meðaltali.
Framúrskarandi og til fyrirmyndar: Dekkjahöllin hefur hlotið viðurkenningu Creditinfo sem framúrskarandi fyrirtæki frá upphafi mælinga eða frá 2010. Jafnframt hefur það fengið útnefningu sem Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri frá Viðskiptablaðinu og Keldunni síðan 2017.
Starfsmannafélag fyrirtækisins er starfrækt á öllum stöðum og skipuleggur gaman saman og skemmtilegar fyrirtækjaferðir.
Starfsmaður á hjólbarðaverkstæði á Akureyri
Dekkjahöllin óskar eftir að ráða starfsmann á hjólbarðaverkstæði, smurstöð og þvottastöð á Akureyri. Starfið felur í sér fjölbreytta vinnu við hjólbarðaþjónustu, smurþjónustu, bílaþvott og afgreiðslu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Fjölbreytt vinna við hjólbarða- og smurþjónustu ásamt afgreiðslu
Menntunar- og hæfniskröfur
- Áhugi og reynsla af bílaþjónustu kostur
- Stundvísi og hæfni í mannlegum samskiptum
- Íslenskukunnátta skilyrði
- 18 ára aldurstakmark
- Bílpróf
Auglýsing birt23. ágúst 2024
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Draupnisgata 5, 603 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
HjólbarðaþjónustaSmurþjónustaStundvísi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (4)
Sambærileg störf (12)
Vantar tvo snillinga í vinnu - Bílamálari og Réttari
Formverk ehf
Starfskraftur í dekkjatörn
Max1 Bílavaktin
Framleiðsla / Lager
Vogue
Þjónustufulltrúi í þjónustudeild Hyundai/Iveco
Hyundai
Starfsmaður á bifreiðaverkstæði Öskju Vesturlandi
Bílaumboðið Askja
Starfsmaður á verkstæði – fjölbreytt og spennandi verkefni
Einingaverksmiðjan
Vélvirki / vélstjóri á véladeild
Héðinn
Hópstjóri á Verkstæði
Toyota
Bifvélavirki
Toyota
Car wash employees
Avis og Budget
Bifvélavirki Volvo og Polestar
Brimborg
Bifvélavirki Ford
Brimborg