

Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk í sumarafleysingu - Svöluás
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öfluga starfsmenn í lærdómsríkt starf á heimili fatlaðs fólks, sem staðsett er í Svöluási í Áslandshverfi. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar.
Um er að ræða spennandi og skemmtilegt starf, með fjölbreyttum verkefnum. Viðkomandi þarf að geta unnið morgun- kvöld-, helgar og næturvaktir.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Veita þjónustunotendum stuðning við athafnir daglegs lífs
- Fylgja eftir þjónustuáætlunum og verklagsreglum
- Virkja þjónustunotendur til ýmissa tómstunda
- Hafa gaman í vinnunni og vera öðrum fyrirmynd
- Sinna heimilisstörfum
- Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Hæfniskröfur:
- Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
- Íslenskukunnátta skilyrði, A2 tungumálastaðall ETM Sjálfsmatsrammi (coe.int)
- Þjónustulund og jákvæðni í starfi
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og samviskusemi
- Líkamleg geta til að sinna krefjandi verkefnum á vinnustaðnum
- Reynsla af sambærulegu starfi æskileg
Æskilegt er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri og hreint sakavottorð er skilyrði.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Birgitta Rós Skarphéðinsdóttir, forstöðukona í síma 565-0301, netfang: [email protected]
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við starfsmannafélag Hafnarfjarðar.
Umsóknarfrestur er til og með 26. mars 2026.
Umsókn fylgi greinargóð ferilskrá.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.
Íslenska












































