Mosfellsbær
Mosfellsbær
Mosfellsbær

Starfsmaður á Heimili fyrir börn

Viltu vera með?

Við á Heimili fyrir börn í Mosfellsbæ leitum eftir öflugum og framsæknum starfsmönnum til liðs við okkur. Við veitum börnum með flókinn og fjölþættan vanda einstaklingsmiðaða þjónustu með það að markmiði að veita börnunum góða líðan og auka félagslega þátttöku. Starfsmenn vinna eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar sem og þjónustu - og starfsáætlunum. Einnig leggjum við mikið upp úr góðri liðsheild og samvinnu á staðnum. Við störfum skv. lögum um fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018 og skv stefnu Mosfellsbæjar í málaflokknum.

Gengið er út frá því að starfsmenn vinni á fjölbreyttum vöktum (dag-, kvöld-, helgar- og næturvöktum). Leitað er verið að 20-30% starf. Um tímabundið starf fram er að ræða, möguleiki er á áframhaldandi starfi.

Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitafélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.

Menntunar- og hæfniskröfur

Áhugi á málefnum fatlaðs fólks og reynsla af störfum með fötluðu fólki er mikill kostur

Þjónustulund og jákvæðni í starfi

Hæfni í mannlegum samskiptum

Framtaksemi og samviskusemi

Frumkvæði, sjálfstæði og metnaður í starfi

Hreint sakavottorð

Aldursskilyrði er 20 ár

Góð íslenskukunnátta skilyrði

Umsóknafrestur er til og með 9. desember. Umsóknir skulu innihalda starfsferilskrá sem greinir frá reynslu, menntun og fyrri störfum ásamt nokkrum orðum af hverju þú telur þig hæfa/n í starfið.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Sunna Líf Kristjánsdóttir forstöðumaður á Heimili fyrir börn í síma 823-1079.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Við hvetjum áhugasöm til að sækja um, óháð aldri, kyni, uppruna eða fötlun.

Auglýsing birt25. nóvember 2024
Umsóknarfrestur9. desember 2024
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Hulduhlíð 32, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.Umönnun (barna/aldraðra/fatlaðra)PathCreated with Sketch.Þolinmæði
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar