
Brimborg
Brimborg er eitt öflugasta fyrirtæki landsins á bílamarkaði með umboð fyrir mörg af þekktustu bílamerkjum heims eins og Volvo, Ford, Polestar, Mazda, Citroën, Peugeot og Opel ásamt Volvo vörubílum, Volvo vinnuvélum og Volvo Penta bátavélum. Brimborg er umsvifamikið í innflutningi, sölu, þjónustu og útleigu á farar- og flutningatækjum til atvinnurekstrar eða einkanota og býður meðal annars hjólbarða frá Nokian og útleigu bíla frá Dollar og Thrifty. Fyrirtækið rekur í dag bílaumboð, bílasölu fyrir fólksbifreiðar, atvinnubíla- og atvinnutæki, bílaleigu og víðtæka varahluta- og verkstæðisþjónustu fyrir bíla og atvinnutæki.
Starfsstöðvar Brimborgar eru í dag átta talsins í Reykjavík, Hafnarfirði, Reykjanesbæ og á Akureyri. Þótt auður hvers fyrirtækis felist að miklu leyti í góðu skipulagi og rekstri er mannauðurinn ekki síður mikilvægur. Þar hefur Brimborg miklu láni að fagna og margir af ríflega 300 starfsmönnum fyrirtækisins hafa starfað hjá því í yfir 20 ár. Þetta er þrautþjálfað fólk með mikla reynslu og þekkingu og slík tryggð starfsmanna við fyrirtæki í harðri samkeppni er ómetanleg.
Brimborg býður upp á breitt úrval starfa, tímabundin sem og ótímabundin og tökum vel á móti nemum til okkar sem hyggjast stefna að fagmennsku í bifvélavirkjun og/eða vélvirkjun. Öll okkar verkstæði eru gæðavottuð frá Bílgreinasambandinu en Brimborg rekur alls 10 verkstæði.

Starfskraftur í langtíma- og sendibílaleigu Brimborgar
Brimborg óskar eftir að ráða hæfileikaríkan og metnaðarfullan starfskraft í langtíma- og sendibílaleigu Brimborgar að Bíldshöfða 8 í Reykjavík.
Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf sem felur í sér útleigu á bílum fyrir langtíma- og sendibílaleigu Brimborgar.
Við bjóðum uppá
Frábæra starfsmannaaðstöðu
Glæsilega búningaaðstöðu og öflugt starfsmannafélag sem skipuleggur fjölbreytta viðburði og félagsstarf
Fjölskylduvænan vinnustað
- Sveigjanleiki í vinnu
- Metnaðarfulla stjórnun
- Fyrirmyndarfyrirtæki Creditinfo
- Fyrirmyndarfyrirtæki í starfsnámi Nemastofu 2025
- Moodup - Vinnustaður í fremstu röð 2024
- Jafnlaunavottað fyrirtæki
- Brautryðjandi í styttingu vinnutímans
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón og afhending langtíma- og sendibílaleigubíla ásamt móttöku
- Samskipti og þjónusta við viðskiptavini og söluaðila
- Selja vörur og þjónustu
- Önnur tilfallandi verkefni í samráði við rekstrarstjóra
Menntunar- og hæfniskröfur
- Stúdentspróf eða sambærilegt
- Frumkvæði, sjálfstæði og fagleg vinnubrögð
- Snyrtimennska, stundvísi og áreiðanleiki
- Gilt bílpróf
Fríðindi í starfi
Fjölbreytt fríðindi samkvæmt mannauðsstefnu Brimborgar
- Niðurgreiddur hádegismatur
- Afsláttur af vöru og þjónustu fyrirtækisins
- Árlegur íþrótta- og heilsustyrkur
Auglýsing birt15. maí 2025
Umsóknarfrestur31. maí 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn

Nauðsyn
Staðsetning
Bíldshöfði 8, 110 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Sbarro Akranesi - Óskar eftir öflugu starfsfólki
sbarro

Sölufulltrúi í framtíðarstarf
Gæðabakstur

Sölumaður/stjóri óskast.
Aqua.is-NP Innovation ehf.

Hlutastarf í afgreiðslu, símsvörun og sölu
Papco hf

Newrest -Þrif og uppvask
NEWREST ICELAND ehf.

Newrest - Framleiðsla
NEWREST ICELAND ehf.

Afgreiðsla og eldhús á Yuzu í Hveragerði
YUZU

Líf Kírópraktík leitar að móttökustarfsmanni
Líf Kírópraktík

Starfsmaður í vöruafgreiðslu óskast
Málmsteypa Þorgríms Jónssonar ehf

Verslunarstarf á Akranesi
Penninn Eymundsson

Meiraprófsbílstjóri /sölumaður
Kjörís ehf

Leikskólinn Sunnuás - mötuneyti
Skólamatur