Kópavogsbær
Kópavogsbær
Kópavogsbær

Starfsfólk í félagslegri heimaþjónustu

Velferðarsvið Kópavogsbæjar óskar eftir starfsfólki í félagslega heimaþjónustu.

Félagsleg heimaþjónusta hefur það markmið að aðstoða notendur sem geta ekki séð um heimilishald án utanaðkomandi aðstoðar. Þjónustan felur í sér aðstoð við heimilishald. Aðallega er um að ræða heimilisþrif, aðstoð við innkaup sem og félagslegan stuðning og hvatningu.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Veita aðstoð við þrif og annað heimilishald
  • Veita félagslegan stuðning til þeirra sem á þurfa að halda, svo sem í formi samveru, búðarferða, gönguferða og stuðnings við að sækja félagsstarf
  • Samvinna við þjónustuþega og aðra starfsmenn

Hæfniskröfur

  • Reynsla af starfi með öldruðum er kostur
  • Stundvísi, jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Reglusemi, sveigjanleiki og sjálfstæði í starfi
  • Gott vald á íslensku er skilyrði.
  • Umsækjendur skulu vera 20 ára og eldri.
  • Æskilegt að hafa bíl til umráða.

Um er að ræða fullt starf eða hlutastarf á dagvinnutíma, tímabundið til 3 mánuða eða eftir samkomulagi.

Þeir sem ráðnir eru til starfa hjá Velferðarsviði Kópavogsbæjar þurfa að skila sakavottorði eða veita heimild til að leitað sé upplýsinga af sakaskrá.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Kópavogsbæjar og Eflingar.

Við hvetjum karla jafnt sem konur til að sækja um starfið.

Nánari upplýsingar um starfið veita þjónustustjórar félagslegrar heimaþjónustu í síma 441-0000.

Auglýsing birt13. október 2021
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Fannborg 6, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar