Kópavogsbær
Kópavogsbær
Kópavogsbær

Starfsfólk í félagslegri heimaþjónustu

Velferðarsvið Kópavogsbæjar óskar eftir starfsfólki í félagslega heimaþjónustu á dagvinnutíma virka daga.

Félagsleg heimaþjónusta hefur það markmið að aðstoða notendur sem geta ekki séð um heimilishald án utanaðkomandi aðstoðar. Þjónustan felur í sér aðstoð við heimilishald. Aðallega er um að ræða heimilisþrif, aðstoð við innkaup sem og félagslegan stuðning og hvatningu..

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Veita aðstoð við þrif og annað heimilishald
  • Veita félagslegan stuðning til þeirra sem á þurfa að halda, svo sem í formi samveru, búðarferða, gönguferða og stuðnings við að sækja félagsstarf
  • Samvinna við þjónustuþega og aðra starfsmenn

Hæfniskröfur

  • Reynsla af starfi með öldruðum er kostur
  • Stundvísi, jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Reglusemi, sveigjanleiki og sjálfstæði í starfi
  • Gott vald á íslensku er skilyrði.
  • Umsækjendur skulu vera 20 ára og eldri.
  • Æskilegt að hafa bíl til umráða.

Um er að ræða fullt starf eða hlutastarf á dagvinnutíma, tímabundið eða eftir samkomulagi.

Umsókn skal fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.

Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Kópavogsbæjar við ráðningar.

Allir einstaklingar sem ráðnir eru til starfa á velferðarsvið Kópavogsbæjar þurfa að gefa heimild til upplýsingaöflunar úr sakaskrá og undirrita trúnaðaryfirlýsingu.

Umsóknarfrestur er til og með 25.01.2024

Nánari upplýsingar um starfið veita þjónustustjórar félagslegrar heimaþjónustu í síma 441-0000 og á netfangi heimathjonusta@kopavogur.is.

Einungis er tekið við umsóknum í gegnum ráðningarvef Alfreðs.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • íslenskukunnátta
Auglýsing stofnuð3. maí 2024
Umsóknarfrestur19. maí 2024
Tungumálakunnátta
ÍslenskaÍslenskaFramúrskarandi
EnskaEnskaMeðalhæfni
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.SamvinnaPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Stundvísi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar