
Kópavogsbær
Kópavogur er næststærsta sveitarfélag landsins með yfir 40.000 íbúa. Kópavogsbær er einn af stærstu vinnuveitendum landsins en hjá sveitarfélaginu starfa að jafnaði um 2.700 einstaklingar á fjölbreyttum starfstöðum um allan bæ. Starfsfólki fjölgar um tæplega 2.000 manns á sumrin þegar sumastarfsmenn mæta til starfa og Vinnuskólinn hefur störf. Starfsfólk Kópavogsbæjar sinnir margvíslegum verkefnum sem miða að því að veita íbúum bæjarins sem allra bestu þjónustu og tryggja velferð þeirra um leið.
Hjá Kópavogsbæ eru þrjú fagsvið, menntasvið, umhverfissvið og velferðarsvið og fjórar skrifstofur sem starfa þvert á sviðin, skrifstofa umbóta og þróunar, skrifstofa þjónustu, skrifstofa mannauðs- og kjaramála og skrifstofa áhættu- og fjárstýringar. Öll störf hjá bænum falla undir eitt af þessum sviðum eða skrifstofum.
Mannauðsstefna Kópavogsbæjar byggir á gildum Kópavogs en þau eru framsækni, virðing, heiðarleiki og umhyggja. Kópavogsbær hefur það einnig að markmiði að vera vinnustaður þar sem öll hafa jöfn tækifæri í starfi. Hjá Kópavogsbæ er tekið mið af jafnréttisáætlun en hægt er að lesa sér til um bæði mannauðs- og jafnlaunastefnu bæjarins hér til hliðar. Starfsfólk Kópavogsbæjar hefur einnig fríðindi en fyrir starfsfólk er í boði að fá líkamsræktarstyrk, frítt í sund og víða er mötuneyti.
Kópavogsbær hefur það að leiðarljósi að vera eftirsóknarverður vinnustaður sem styður við heilsu, öryggi og vellíðan starfsfólks. Lögð er áhersla á að taka vel á móti starfsfólki og veita því markvissa þjálfun þannig að það nái góðum tökum á starfinu og líði vel í vinnunni. Mikil áhersla er lögð á gott samstarf þvert á deildir og svið bæjarins, því saman myndar starfsfólk sterka heild þar sem markmiðið er að fjölbreytt þekking, hæfni og reynsla nýtist sem best.
Kópavogsbær vill fá til liðs við sig öflugt og metnaðarfullt fólk sem er tilbúið að gera góðan bæ enn betri.

Starfsfólk á skammtímaheimili fatlaðra
Ertu göngugarpur? Finnst þér gaman að fara í sund? Ertu hugmyndarík/ur og vilt fjölbreytni í starfi? Ertu hress og afburðarfær í samskiptum? Þá erum við að leita að þér!
Velferðarsvið Kópavogs óskar eftir starfsfólki til starfa á skammtímaheimili fyrir fatlað fólk í Kópavogi. Á heimilinu sækja tíu einstaklingar þjónustu, fimm í einu, og þar er lögð áhersla á að þjónustunotendur búi sig undir flutninga að heiman. Starfið felst í því að veita aðstoð og leiðbeiningar við allt er lýtur að daglegu lífi þjónustunotenda bæði inni á heimilinu og utan þess.
Um er að ræða 70% stöðu þar sem unnið er um helgar og á kvöldvöktum.
Menntunar- og hæfniskröfur
Félagsliði, nám á framhaldsskólastigi eða töluverð reynsla af vinnu með fötluðu fólki.
Góð íslenskukunnátta nauðsynleg.
Hæfni í samskiptum og samstarfi.
Framtakssemi og sjálfstæði.
Jákvæðni og sveigjanleiki í starfi.
Geta til að starfa undir álagi.
Geta til að aðlagast breyttum aðstæðum og tileinka sér nýjar nálganir.
Helstu verkefni og ábyrgð
Einstaklingsmiðaður, persónulegur stuðningur við þjónustunotendur.
Vera þjónustunotendum góð fyrirmynd.
Stuðla að auknu sjálfstæði þjónustunotenda.
Almennt heimilishald.
Samvinna við starfsmenn og aðstandendur.
Fjölbreytt verkefni.
Auglýsing birt22. september 2022
Umsóknarfrestur2. október 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Hrauntunga 54, 200 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
JákvæðniSjálfstæð vinnubrögðTeymisvinna
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (12)

Traust aðstoðarkona óskast
NPA miðstöðin

Deildarstjóri óskast í búsetuþjónustu
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Starfskraftur í heimaþjónustu
Best heima

Ertu til í flippað hlutastarf með afleysingarívafi?
NPA miðstöðin

Umönnunarstörf - Sóltúni í Reykjavík
Sóltún heilbrigðisþjónusta

Gefandi og skemmtilegt starf í Eljunni
Eljan

Starfsfólk í heimaþjónustu - Sóltún Heima
Sóltún heilbrigðisþjónusta

Skemmtilegt starf í Búsetukjarna
Velferðarsvið Mosfellsbæjar - Búsetukjarnar

Starfsþjálfun í áfengis- og vímuefnaráðgjöf
SÁÁ

Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk - Lækjamót
Suðurnesjabær

Starfsmenn í heimaþjónustu í Fjarðabyggð
Heimaþjónusta Fjarðabyggðar

Símsvörun - þjónustuver
Teitur