
Starf í flugrekstrardeild Landhelgisgæslunnar
Landhelgisgæsla Íslands leitar að jákvæðum og drífandi einstaklingi til að sinna fjölbreyttum verkefnum í lifandi og krefjandi umhverfi í flugrekstrardeild Landhelgisgæslunnar. Um er að ræða tímabundið starf með möguleika á fastráðningu.
-
Umsjón með handbókum
-
Verkefnastjórn ýmissa þátta flugrekstrardeildar
-
Verkefni tengd þjálfun áhafna
-
Samskipti við flugmálayfirvöld og aðra flugrekendur
-
Önnur tilfallandi verkefni á sviði flugrekstrardeildar
-
Menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi
-
Haldbær þekking á reglugerðarumhverfi í flugstarfsemi
-
Reynsla af verkefnastjórn kostur
-
Þekking á WebManuals og SMS360 kostur
-
Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum
-
Frumkvæði, nákvæmni og skipulagshæfileikar
-
Mjög góð tölvufærni skilyrði
-
Góð íslensku- og enskukunnátta
Umsækjendur þurfa að standast kröfur Landhelgisgæslunnar um líkamlegt og andlegt atgervi. Einnig skal starfsfólk uppfylla skilyrði fyrir öryggisheimild samanber varnarmálalög nr. 34/2008 og reglugerð nr. 959/2012.
Íslenska
Enska










