Isavia / Keflavíkurflugvöllur
Isavia / Keflavíkurflugvöllur
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Starf í APOC Keflavíkurflugvelli

Við óskum eftir að ráða einstakling til starfa í APOC sem er stjórnstöð Keflavíkurflugvallar. Í APOC fer fram eftirlit og samhæfing daglegs rekstrar flugvallarins. Um er að ræða krefjandi og skemmtilegt starf í fjölbreyttu umhverfi á Keflavíkurflugvelli. Unnið er á dag- og næturvöktum samkvæmt 5-5-4 vaktakerfi.

Helstu verkefni

  • Úthlutun loftfararstæða og annarra innviða

  • Eftirlit og samræming daglegs rekstrar Keflavíkurflugvallar

  • Eftirlit með kerfum, fasteignum og búnaði

Hæfniskröfur

  • Stúdentspróf eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi

  • Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli

  • Góð tækni- og tölvukunnátta er skilyrði

  • Góðir samskipta- og skipulagshæfileikar

Starfsstöð: Keflavíkurflugvöllur

Isavia er vinnustaður þar sem við sýnum hvert öðru virðingu og erum heiðarleg gagnvart sjálfum okkur og öðrum. Við gætum þess að viðhalda gleðinni, erum hugrökk, uppbyggileg og tökum ábyrgð á eigin frammistöðu. Saman náum við árangri.

Við bjóðum upp á hollan og góðan mat í mötuneytum okkar og allt starfsfólk hefur aðgang að heilsu- og líkamsræktarstöðvum sér að kostnaðarlausu.

Umsóknarfrestur er til og með 21. nóvember 2024.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Bjarni Freyr Borgarsson, deildarstjóri, bjarni.borgarsson@isavia.is

Umsóknum skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi um hæfni viðkomandi í starfið.
Við hvetjum áhugasama aðila, án tillits til kyns og uppruna, til að sækja um.

Auglýsing birt7. nóvember 2024
Umsóknarfrestur21. nóvember 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Keflavíkurflugvöllur, 235 Reykjanesbær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Samskipti með tölvupóstiPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar