
BL ehf.
BL er eitt stærsta og elsta bílaþjónustufyrirtæki landsins og nær saga okkar allt aftur til ársins 1954.
Á þeim tíma hafa bílar og bílaframleiðsla breyst gríðarlega og sjaldan hefur þróunin verið jafn spennandi og einmitt núna þegar nýir möguleikar eru að opnast til að koma okkur hratt og örugglega milli staða í sem mestri sátt við umhverfið og náttúruna.
Á fimm starfsstöðvum rekum við umboð fyrir fólks- og atvinnubíla frá 12 framleiðendum og starfrækjum vottuð þjónustu-, málningar- og réttingaverkstæði sem eru ein þau fullkomnustu á landinu. Við leggjum áherslu á góða starfsaðstöðu og starfsanda og hjá okkur er öflugt starfsmannafélag. BL er með jafnlaunavottun og við erum fyrirmyndarfyrirtæki VR.
Hvort sem þú leitar að tímabundnu starfi eða hyggur á fagmenntun til framtíðar þá færðu frábært tækifæri hjá BL til að kynnast nýjustu tækni og öðlast reynslu í einhverri mikilvægustu og fjölbreyttustu atvinnugrein samtímans í návígi við marga af fullkomnustu og glæsilegustu bílum heims.

Standsetning nýrra bíla
Við óskum eftir að ráða starfsmann í standsetningu nýrra bíla hjá umboðinu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Starfið felst í þrifum á bílum, akstri á bílum sem eru í standsetningarferli og ýmis verkefni tengd standsetningu nýrra bíla samkvæmt stöðlum framleiðenda.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Gild ökuréttindi eru skilyrði
- Meiraprófsréttindi kostur
- Kunnátta á dekkjaskiptum/umfelgun kostur
- Reynsla af lakkleiðréttingum kostur
- Góð tölvukunnátta kostur
- Vandvirk, nákvæm og sjálfstæð í vinnubrögð
- Íslensku- og/eða enskukunnátta er skilyrði
Fríðindi í starfi
- Aðgangur að heitum mat
- Afsláttarkjör af bílum, aukahlutum, varahlutum ofl.
- Íþróttastyrkur
- Afsláttur á hleðslustöðvum Ísorku
- Afsláttur af leigu á bílum hjá Hertz
Auglýsing birt4. febrúar 2026
Umsóknarfrestur20. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Vesturvör 10, 200 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
Almenn ökuréttindiSjálfstæð vinnubrögðTeymisvinnaVandvirkni
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Verkstjóri á bónstöð – Reykjavík
Alvörubón ehf.

Standsetning bíla á Keflavíkurflugvelli
Hertz Bílaleiga

Sumarstörf á Selfossi
Eimskip

Car Painter & Bodywork Technician
Dekkjalíf ehf.

Steypubílstjóri á Selfossi
Steypustöðin

Bílstjóri á hálendisrútuna - sumarstarf
Icelandia

Bifvélavirki / Mechanic
Lotus Car Rental ehf.

Starfsmaður á verkstæði
Airport Associates

Þjónustudeild bensínstöðva
Orkan

Sumarstörf hjá Coca-Cola á Íslandi 2026
Coca-Cola á Íslandi

Kranabílstjóri / Kranamaður
Jón og Margeir ehf.

Starfsfólk í verksmiðju
Þörungaverksmiðjan hf. / Thorverk