Spennandi tækifæri á Húðlæknastöðinni á Akureyri!
Hefur þú brennandi áhuga á húð og húðmeðferðum?
Húðlæknastöðin opnar á Akureyri á nýju ári! Því leitum við að lækni eða hjúkrunarfræðingi með brennandi áhuga á húð til að starfa á nýrri og glæsilegri starfsstöð okkar á Akureyri. Húðlæknastöðin leggur mikla áherslu á fagleg vinnubrögð og að okkar viðskiptavinir fái bestu mögulegu meðferð sem völ er á undir handleiðslu færustu fagmanna landsins á sviði húð- og fegrunarlækninga.
Við leitum að þér sem hefur
-
Áhuga á húð og fegrunarmeðferðum
-
Læknir eða hjúkrunarfræðingur
-
Sýnir metnað og getur starfað sjálfstætt
-
Hefur áhuga á markaðssetningu og þróun í starfi
Við bjóðum upp á
-
Þjálfun í húðmeðferðum frá fremstu sérfræðingum landsins
-
Faglegt og hvetjandi vinnuumhverfi þar sem gæði og fagmennska eru í fyrirrúmi
-
Möguleika á starfsþróun, símenntun og aðgang að nýjustu tækni á sviðinu
Mentunar- og hæfniskröfur
Starfsleyfi frá Landlækni
Nánari upplýsingar veitir Ágústa Ýr Hafsteinsdóttir, agusta@hls.is