Spennandi starf á fasteignasviði Flóahrepps
Leitað er eftir metnaðarfullu, sjálfstæðu og jákvæðu starfsfólki til að sinna ýmsum fjölbreyttum verkefnum í fasteignum hjá sveitarfélaginu Flóahreppi.
Starfshlutfall er um 80-90%
Vinnutími virka daga frá ca. 8:00-14:00 og vaktir aðra hverja helgi að jafnaði yfir árið.
Unnið er í náinni samvinnu við aðra starfsmenn á fasteignasviði og undir verkstjórn umsjónarmanns fasteigna í Flóahreppi.
Mikilvægt er að umsækjandi búi á svæðinu þar sem starfið krefst þess að vera nærri vinnustað.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Umsóknir um starfið ásamt starfsferilskrá og meðmælum berist í gegnum alfreð.is eða með því að senda tölvupóst á [email protected].
Yfirferð umsókna hefst 15. febrúar 2025 en tekið verður við umsóknum til 28. febrúar ef þörf er talin á lengri umsóknarfresti.
Nánari upplýsingar um starfið gefur Hulda Kristjánsdóttir sveitarstjóri (480 4370 / [email protected])
- Húsvarsla í fasteignum
- Umsjón og ábyrgð á bókunum
- Samskipti við leik- og grunnskóla
- Umsjón með lóðum við fasteignir
- Undirbúningur vegna viðburða
- Þrif og frágangur
- Innkaup skv. fjárhagsáætlun
- Tilfallandi verkefni og viðhald
- Gild ökuréttindi
- Færni í mannlegum samskiptum
- Stundvísi
- Áreiðanleiki
- Sveigjanleiki
- Sjálfstæði
- Snyrtimennska
- Almenn tölvukunnátta
- Krafa um íslenskukunnáttu
- Enskukunnátta