Söluráðgjafi hljóð- og myndlausna Ofar
Við leitum að árangursdrifnum einstaklingi í öflugt teymi hljóð- og myndlausna hjá Ofar með áherslu á skjálausnir og skjáskilti. Hljóð og myndlausnir Ofar sérhæfa sig í lausnum fyrir fyrirtæki m.a. fyrir fundarherbergi, sali, verslanir, ráðstefnusali og verslunarmiðstöðvar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ráðgjöf og sala á skjálausnum, skjáskiltum og kerfum tengdum þeim
- Ráðgjöf og sala á fundarbúnaði og lausnum
- Tilboðsgerð
- Eftirfylgni og verkefnastýring
- Öflun nýrra viðskipta og samskipti við núverandi viðskiptavini
Menntunar- og hæfniskröfur
- Þekking / reynsla á hljóð- og myndbúnaði nauðsynleg
- Rík þjónustulund og skilningur á þörfum viðskiptavina
- Reynsla af ráðgjöf og sölu skilyrði
- Sjálfstæði og framúrskarandi samskiptahæfni
- Reynsla við samningagerð kostur
- Mjög góð enskukunnátta
Fríðindi
- Framúrskarandi vinnuaðstaða
- Líkamsræktaraðstaða
- Styrkir s.s. íþróttastyrkur, samgöngustyrkur o.fl
Hlutverk Ofar er að styðja við fyrirtæki, stofnanir og endursöluaðila með tölvu- og tæknibúnaði frá yfir 150 heimsþekktum vörumerkjum á borð við Lenovo, Canon, Bose og Sony. Fyrirtækið býður einnig upp á framúrskarandi úrval og þjónustu í hljóð- og myndlausnum, prentlausnum, ásamt tæknilausnum fyrir vöruhús, verslanir, veitingastaði og fleira.
Fylgdu okkur á samfélagsmiðlum til að læra meira um vinnustaðinn.
Umsóknarfrestur er til og með 9. febrúar nk. Allar umsóknir og fyrirspurnir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál og þeim svarað.