H&M
H&M
H&M

Söluráðgjafar í verslanir H&M

Í augum viðskiptavina okkar ert þú H&M! Þú ert vingjarnleg(ur), með flottan stíl og elskar að vinna með öðrum. Þú gerir gæfumuninn í H&M-versluninni. Þú hefur í nóg að snúast alla daga við að tryggja viðskiptavinunum frábæra þjónustu og ráðleggja um tísku og stíl..

Söluráðgjafi er eitt mikilvægasta starfið hjá fyrirtækinu okkar og frábært fyrsta skref á framabrautinni hjá H&M. Margir af millistjórnendunum okkar hófu sinn feril í sölu „á plani“.

Frammi í versluninni er frábær þjónusta öllu öðru mikilvægari. Sem Sales Advisor getur þú hent marga bolta á lofti í einu og nýtur þess að vera á þönum. Þú ert líka jákvæð, vinaleg manneskja með frábæra tilfinningu fyrir stíl. Þú hefur mikla skipulagshæfileika og hefur gaman af því að vinna í teymi með öðrum sem deila með þér opnum huga og brennandi áhuga á tísku.

Starfsmaður í verslun er fulltrúi H&M. Þú þarft að hvetja, leiðbeina og aðstoða viðskiptavinina á allan hátt. Hvort sem það er á frammi í versluninni, í mátunarklefanum eða við afgreiðslukassann ertu að vinna við tísku og vinna með fólki. Frábær þjónusta við viðskiptavini felur einnig í sér að taka við nýjum sendingum og ganga fallega frá flíkunum, þannig að verslunin líti vel út. Auðvitað þarftu líka að fylgjast vel með og vita allt um söluherferðir og sölutengda viðburði. Þú færð margs konar tækifæri til að breyta og framkvæma. Ef þú ert í leit að ævintýrum verður vegferðin þín hjá H&M spennandi og viðburðarík.

Auglýsing birt15. nóvember 2021
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Hagasmári 2, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar