

Sölumaður - Icelandic Food Company
Icelandic Food Company (IFC) er í örum vexti og leitar að öflugum og drífandi sölumanni til að bætast í liðið okkar. Fyrirtækið framleiðir matvæli fyrir verslanir Krónunnar og aðra viðskiptavini, þar með talið N1.
Nýjasta viðurkenning okkar er Fyrirmyndarfyrirtæki ársins 2026 hjá VR, sem endurspeglar það öfluga starfsumhverfi sem við höfum byggt upp.
Sölumaðurinn er hlekkur okkar á milli framleiðslu og verslunar, og hefur það lykilhlutverk að tryggja að vörur IFC séu sýnilegar, aðgengilegar og vel kynntar í verslunum.
• Heimsækja verslanir Krónunnar og N1 reglulega og byggja upp góð samskipti við verslunarstjóra og starfsfólk
• Tryggja að vörur okkar séu vel framsettar á hillum verslanna
• Kynna nýjar vörur og fylgja eftir vöruþróun
• Fylgjast með lagerstöðu, hreyfingu og söluþróun í verslunum
• Bregðast við ábendingum verslunarstjóra og koma þeim áleiðis
• Vinna með Krónunni og IFC að því að auka sölu og bæta framsetningu
• Reynsla úr Krónunni er skilyrði, hvort sem er úr verslun, birgja- eða söluhliðinni
• Þekking á matvörumarkaði og hilluframsetningu
• Bílpróf og geta til að ferðast milli verslana, einnig út á landi
• Sjálfstæð, skipulögð og drífandi vinnubrögð
• Góð samskiptahæfni og þjónustulund
• Íslenskukunnátta í ræðu og riti
• Þekking á vörum IFC - Fiskverslun Hafliða, Matseðill, Tjikký og þær Krónu-vörur sem við framleiðum
Enska
Íslenska










