

Sölufulltrúi Veitingahúsa
Mekka Wines & Spirits er leiðandi áfengisheildverslun sem sérhæfir sig í innfluttningi og dreifingu á fjölmörgum af þekktustu áfengisvörumerkjum heims. Við leitum nú að skemmtilegum vinnufélaga með framúrskarandi samskiptahæfileika til að bæta í söluteymið okkar.
· Dagleg samskipti og þjónusta við viðskiptavini.
· Byggja upp og efla viðskiptasambönd við söluaðila.
· Greina og keyra áfram sölutækifæri til vaxtar.
· Tilboðsgerð og frágangur samninga.
· Vörukynningar og uppbygging vörumerkja.
· Drifkraftur, skipulagshæfni og metnaður til að ná árangri í starfi.
· Reynsla og/eða menntun sem nýtist í starfið.
· Áhugi á vöruúrvali og metnaður til að efla vöruþekkingu.
· Söluhæfileikar og sannfæringamáttur.
· Þjónustulund.
· Gott vald á ensku og íslensku.
Við bjóðum samkeppnishæf og árangurstengd laun, frábæra vinnuaðstöðu, hvetjandi vinnuumhverfi og skemmtilegan starfsanda.
Íslenska
Enska










