Byko
Byko
Byko

Sölufulltrúi - BYKO Akureyri

Við leitum að öflugum einstaklingi til að sinna starfi sölufulltrúa í verslun okkar á Akureyri.

Starfið felur í sér ráðgjöf, tilboðsgerð og sölu á innihurðum, hreinlætistækjum og gólfefnum ásamt eftirfylgni með pöntun og afhendingu til viðskiptavina.

Ef þú ert framsækinn og faglegur einstaklingur með gleðina í fyrirrúmi þá erum við að leita að þér.


Við leitum af einstaklingi með:

  • Metnaði fyrir að veita framúrskarandi sölu- og þjónustuupplifun til viðskiptavina
  • Áhuga á verslun og þjónustu
  • Þekkingu á innihurðum, hreinlætistækjum og gólfefnum - kostur
  • Góða tölvukunnáttu
  • Samviskusemi, skipulögð og öguð vinnubrögð
  • Íslensku- og enskukunnáttu - skilyrði


Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Tilboðsgerð, sala og ráðgjöf til viðskiptavina
  • Eftirfylgni með tilboðum og pöntunum frá upphafi til afhendingar
  • Viðhalda góðu sambandi við viðskiptavini
  • Önnur tilfallandi störf


Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum og á öllum aldri til að sækja um.

BYKO hefur sett sér þá framtíðarsýn að skapa bestu heildarupplifun viðskiptavina í framkvæmdum og fegrun heimilisins. Í þeirri vinnu höfum við gildin okkar að leiðarljósi; fagmennska, framsækni og gleði.

Auglýsing birt2. júlí 2026
Umsóknarfrestur12. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Óðinsnes 2, 603 Akureyri
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar